Bikarmót Vesturlands 25.ágúst
„Bikarmót Vesturlands 2012 í hestaíþróttum verður haldið í Stykkishólmi laugardaginn 25. ágúst. Tímasetning og nánari dagskrá verður kynnt þegar skráning liggur fyrir. Upplýsingar verða kynntar á www.snaefellingur.123.is. Mótið er fyrir félagsmenn í hestamannafélögum á Vesturlandi.
Skráning fer fram á netfanginu [email protected] og hefst fimmtudaginn16. ágúst og lýkur kl 23:59 þriðjudagskvöldið 21. ágúst. Skráningargjald er 3000 kr. á hverja skráningu í 1. Flokki, en 1500 kr. í ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki. Ef ekki verður næg þátttaka í einhverjum flokkum verður sá flokkur sameinaður öðrum eða feldur niður. Keppt verður í hefðbundnum greinum og eru 2 inná vellinum í einu í öllum flokkum.
Reiknisnúmerið er 0191-26-876 kt. 440992-2189. Senda þarf kvittun í tölvupósti á [email protected]. Skýring: nafn og kt. knapa sem greitt er fyrir.
Greiðsla þarf að hafa borist fyrir kl 13:00 miðvikudaginn 22. ágúst.
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
Nafn og kennitala keppenda.
Nafn og kennitala keppenda.
Nafn hests og IS númer.
Hestamannafélag sem keppt er fyrir.
Keppnisgreinar og upp á hvora hönd er sýnt.
Hver sé greiðandi, ef það er ekki knapinn sjálfur.
Flokkar sem keppt er í á Bikarmóti Vesturlands 2012:
1. flokkur:
tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið
ungmennaflokkur:
tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið
unglingaflokkur:
tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið
barnaflokkur:
tölt, fjórgangur
100m skeið.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH