Mundi á Hóli vann folaldasýningu
Hrossaræktarsamband Dalamanna hélt folaldasýningu í reiðhöllinni í Búðardal, Nesoddahöllinni, laugardaginn 12. nóvember s.l. Þátttaka var ágæt, sýnd voru 6 merfolöld og 13 hestfolöld. Dómari var Sigbjörn Björnsson frá Lundum.
Efst í flokki hryssa varð Urð frá Blönduhlíð, jarpvindótt-stjörnótt folald undan Stefni frá Búðardal og Skriðu frá Ytra-Vallholti en eigandi og ræktandi Urðar er Ásgeir S. Jónsson bóndi í Blönduhlíð. Næst komu tvö folöld úr ræktun Sigurðar Jökulssonar á Vatni.
Af hestunum varð efst ónefnt móvindótt folald frá Hóli í Hörðudal, undan Stefni frá Búðardal og Gjóstu frá Hóli en eigandi og ræktandi folaldsins er Guðmundur Guðbrandsson sem hestamenn og sveitungar þekkja sem Munda á Hóli. Þessi niðurstaða þótti sérstaklega skemmtileg enda mun þetta hafa verið í fyrsta sinn sem Guðmundur tekur þátt í folaldasýningu en hann er nú 96 ára gamall. Í öðru og þriðja sæti lentu svo folöld frá Vatni og frá Ingibjörgu og Gísla á Spágilsstöðum.
Í höllina mætti ágætis fjöldi áhorfenda og þótti sýningin í alla staði skemmtileg og góð. Áhorfendur kusu svo um fallegasta folaldið og það var Urð hans Ásgeirs í Blönduhlíð sem hlaut þann heiður.
Úrslit sýningarinnar urðu eftirfarandi:
Hestfolöld
Áhorfendur völdu Urð frá Blönduhlíð sem folald sýningarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH