Ósáttur við reiðmennskuna
Í fyrsta tölublaði Hestablaðsins á því herrans ári 2013 er viðtal við Denna Hauksson í Svíþjóð. Denni er sér á báti hvað varðar þjálfun og reiðmennsku á íslenskum hestum. Hann er afar prúður knapi og falleg áseta hans sker sig úr.
Hann er trúr hinum klassíska þjálfunarskala í tamningu og þjálfun hrossa sinna og hefur lengi verið ósáttur við þróun reiðmennskunnar í keppni og sýningum í Íslandshestamennskunni. Hann segist hafa kynnst frægum keppnishestum, sem voru í raun úrbræddir.
Fyrir fimm árum ákvað hann að hætta keppni, en sá sig tilneyddan að halda áfram. Atvinnu tamningamaður og þjálfari sem „treystir“ sér ekki til að taka þátt í keppni og sýningum missir fljótt tiltrú og þar með vinnuna. Lesið viðtal við Denna Hauks í Hestablaðinu, sem kemur út á morgun.
Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511-6622
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH