Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum – Lið Laxárholts
Næsta lið sem við viljum kynna fyrir ykkur er lið Laxárholts.
–
Liðstjóri er Tinna Rut Jónsdóttir, 32 ára, hún hefur verið límd í hnakkin síðan hún var lítil og er nú búsett á Laxárholti, þar sem hún er bústjóri þar, þar sem hún stundar litla hrossarækt, tamningar og þjálfun hrossa, einnig er rekið kúabú á Laxárholti. Tinna hefur verið nokkuð sýnileg á keppnisvellinum með ágætis árangri. Tinna var í Noregi í 2 ár og starfaði þar sem tamningamaður og reiðkennari einnig keppti hún mikið þar með mjög góðum árangri. Einnig hefur hún verið að vinna sem reiðkennari hérlendis.
–
Jón Steinar Konráðsson, er uppalinn í Stykkishólmi en búsettur á Gauksstöðum í Garði. Hann er í hestamannafélaginu Mána. Jón Steinar vann lengi á sjó en er í dag sjálfstætt starfandi. Hann byrjar 2014 að keppa í áhugamannadeildinni og náði þar ágætum árangri. Jón Steinar er metnaðarfullur knapi sem kemur sterkur inn í deildina.
–
Anna Renisch, 30 ára. Hún lærði af meistara Einari öder í Austurríki. Svo kom hún til íslands árið 2015 og vann hjá Jakob Svavari. Eftir það byrjaði hún að vinna sem tamningamaður á Lundum og mun gera það áfram.
Henni hefur gengið vel á síðustu mótum.
Í ár ætlar hún að reyna sýna nýja hesta. Alltaf spennandi að sýna hesta sem þú ert tamdir og þjálfaðir sjálfur.
–
Kristófer Darri Sigurðsson, 19 ára. stundar hestamennsku í Hestamannafélaginu Spretti ásamt námi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Hefur stundað hestamennsku frá barnæsku og verið að keppa í gegnum tíðina með góðum árangri.
–
Benedikt Þór Kristjánsson, stundar hestamensku a Akranesi. Ómentaður áhugamaður sem hefur gaman að keppa. Hefur verið i deildini frá upphafi fyrir utan eitt ár.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH