Dýr og flugeldar
Nú eru að renna upp ein áramótin enn, tími söknuðar og tilhlökkunar. Íslendingar eru öðrum þjóðum duglegri að kveðja gamla árið og fagna því nýja með brennum og flugeldum…
Hross eru óstjórnlega hrædd við allskyns flugelda, bombur og sprengingar. Slys hafa orðið á fólki af þessum völdum, er það hefur verið á útreiðum á gamlársdag og er þá betra heima setið en af stað farið. Útigangshross geta orðið skelfingu lostin þegar sprengingarnar eru í gangi, jafnvel þótt það sé í nokkurri fjarlægð. Geta þau þá jafnvel hlaupið í gegnum girðingar í æðiskasti og bæði slasað sig og eiðilagt girðingarnar. Rétt er að benda þeim sem eiga hross úti á að reyna að koma þeim inn eða í aðhald. Vel reynist ef hross eru rekin inn í gerði að hafa traktor eða bíl í gangi utan við gerðið, með ljósin logandi og gefa svo hrossunum hey á jörðina. Eins með þau hross sem eru inni í hesthúsum, það er betra að hafa öll ljós kveikt og útvarpið á, þá verða þau ekki eins mikið vör við lætin.
Sumir hundar eru hræddir við sprengingar og er hægt að fá róandi lyf hjá dýralæknum til þess að gefa þeim áður en ósköpin dynja yfir.
Gleðilega hátíð.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH