Óskað eftir hestum með hegðunarvandamál
Þriðja árs nemar Hólaskóla auglýsa eftir hrossum með hegðunarvandamál í verkefnið “Lausnir” vikuna 18.-22. maí.
„Umsjónarmaður hestsins kemur með hestinn á Hóla á mánudeginum, hesturinn er þjálfaður í þrjá daga af nemendum og kemur svo umsjónarmaður hestsins aftur á föstudegi og fær kennslu um áframhaldandi þjálfun.
Einungis 12 hestar komast að og er verkefnið eigendum að kostnaðarlausu.
Umsókn með lýsingu af vandamálinu sendist á [email protected] eða í síma 898-8876 (Mette)
Munum velja út þá hesta sem við teljum henta best í verkefnið,“ segir í tilkynningu frá Háskólanum á Hólum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH