Opið íþróttamót á Mánagrund

  • 17. apríl 2015
  • Fréttir
Skráning stendur til 21. apríl.

Opið íþróttamót Mána fer fram á Mánagrund í Reykjanesbæ helgina 25.-26. apríl. Stefnt er að stórglæsilegu móti enda vor í lofti. Boðið verður upp á eftirfarandi greinar:

  • Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Tölt T2 – Tölt T3 – Fimmgangur F1 – Gæðingaskeið
  • 1.flokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3-Tölt T4-Fimmgangur F2-Gæðingaskeið
  • 2.flokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3 – Tölt T4 -Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
  • Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3 – Tölt T4 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
  • Unglingaflokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
  • Barnaflokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3
  • 100m skeið (flugskeið)

Fimm dómarar munu dæma á mótinu. Skráning er hafin á Sportfeng.com en lokað verður fyrir skráningu á miðnætti þriðjudaginn 21. apríl. Skráningargjald er kr. 4000 fyrir hverja grein. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka ef ekki næst nægileg þátttaka.

Ath að ef greitt er með millifærslu þá verður að setja pöntunarnúmer sem tilvísun og senda póst á: [email protected] Ef greiðsla hefur ekki borist þá er keppandi ekki skráður á mótið. Komi upp vandamál er hægt að hafa samband við Helgu Hildi s. 848-1268 og Bjarna s. 866-0054.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá hestamannafélaginu Mána.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link