Meistaradeild KS í hestaíþróttum Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum sigruðu fjórganginn.

  • 4. mars 2021
  • Fréttir
Fyrsta mót ársins í Meistaradeild KS fór fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum í gærkvöldi þar sem keppt í fjórgangi. Nýjar sóttvarnarreglur gáfu leyfi fyrir ákveðnum fjölda áhorfenda í sal sem skapaði skemmtilega stemningu en einnig var mótið sent út á Tindastól TV.
Mótið gekk vel fyrir sig þar sem knapar létu ekki bíða eftir sér. Sigurvegari kvöldins var Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum með einkunnina 7,60 en þær vinkonur sigra þessa grein þriðja árið í röð. Í öðru sæti var Randi Holaker með Þyt frá Skáney, þriðja sæti Védís Huld og Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum og jafnir í 4-5 sæti voru Bjarni Jónasson með Hörpu Sjöfn frá Hvolsvelli og Þórarinn Eymundsson með Hnjúk frá Saurbæ.
A-úrslit
1. Mette Mannseth & Skálmöld frá Þúfum 7,60
2. Randi Holaker & Þytur frá Skáney 7,27
3. Védís Huld Sigurðardóttir & Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum 7,03
4-5. Bjarni Jónasson & Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli 6,93
4-5. Þórarinn Eymundsson & Hnjúkur frá Saurbæ 6,93
B-úrslit
6. Magnús Bragi Magnússon & Óskadís frá Steinnesi 6,90
7. Valdís Björk Guðmundsdóttir & Páfi frá Kjarri 6,67
8. Þórdís Inga Pálsdóttir & Blængur frá Hofsstaðaseli 6,63
9. Sunna Sigríður Guðmundsdóttir & Krafla frá Hamarsey 6,57
10 . Lilja S. Pálmadóttir & Mói frá Hjaltastöðum 6,40
11-12. Sigrún Rós Helgadóttir& Hagur frá Hofi á Höfðaströnd 6,43
11-12. Guðmar Þór Pétursson & Ástarpungur frá Staðarhúsum 6,43
13. Elvar Einarsson & Muni frá Syðra-Skörðugili 6,40
14-15. Þorsteinn Björn Einarsson & Fannar frá Hafsteinsstöðum 6,37
14-15. Ísólfur Líndal Þórisson & Kormákur frá Kvistum 6,37
16. Agnar Þór Magnússon & Þjóstur frá Hesti 6,33
17. Haukur Bjarnason & Ísar frá Skáney 6,30
18. Ásdís Ósk Elvarsdóttir & Flóvent frá Breiðstöðum 6,27
19. Barbara Wenzl & Mætta frá Bæ 6,23
20. Guðmar Freyr Magnússon & Sigursteinn frá Íbishóli 6,10
21. Líney María Hjálmarsdóttir & Snælda frá Húsavík 6,07
22. Jóhann Magnússon & Garri frá Bessastöðum 6,03
23. Gísli Gíslason & Dreyri frá Kálfsstöðum 5,90
24. Vera Evi Schneiderchen & Sátt frá Kúskerpi 5,87

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link