Úrslit frá Stórmóti hestamanna á Melgerðismelum
Stórmót hestamanna fór fram á Melgerðismelum um helgina og var mikil stemning í kappreiðum mótsins að er fram kemur í frétt frá hestamannafélaginu Létti:
„Nú er úrslitadagurinn runninn upp og byrjuðum við á 250m skeiði og gáfu Jónas og Kristín í Litla Dal verðlaunaféð í greinina. Í 300m brokk brokkaðir því miður enginn hestur en verðlaunaféð gáfu þeir feðgar á Grund. Gunnar á Grund keppti í 800m brokki á Íslandsmóti 1973 á tímanum 1.21.
300m stökkið var æsispennandi en Anna Sonja Ágústsdóttir átti 2 bestu tímana á sitthvorum hestinum og var það pabbi hennar hann Ágúst Ásgrímsson sem keppti fyrir hana á Vígaglúmi og er skemmst frá því að segja að sá gamli vann hana í sprettinum en Anna Sonja átti þó betri tíma.
150m skeiðið var gefið af Dýrey og B. Jensen. Þess má einnig geta að 100m skeiðið sem keppt var í í gær var gefið af Dýraspítalanum í Lögmannshlíð og Jóni Björnssyni.
Léttir og Funi þakkar öllum keppendum, áhorfendum og sjálfboðaliðum fyrir frábært mót.“
Úrslit kappreiða má nálgast hér.
A flokkur A-úrslit
1 Tristan frá Árgerði / Stefán Birgir Stefánsson 8,68
2 Formúla frá Vatnsleysu / Jón Herkovic 8,62
3 Dagur frá Strandarhöfði / Stefán Friðgeirsson 8,53
4 Johnny frá Hala / Svavar Örn Hreiðarsson 8,48
5 Prati frá Eskifirði / Sveinn Ingi Kjartansson 8,45
6 Jökull frá Efri-Rauðalæk / Baldvin Ari Guðlaugsson 8,44
7 Þorri frá Möðrufelli / Þorbjörn Hreinn Matthíasson 8,41
8 Tíbrá frá Litla-Dal / Þórhallur Þorvaldsson 2,41 (hætti keppni)
B flokkur A-úrslit
7 Týr frá Yzta-Gerði / Birgir Árnason 8,50
8 Blær frá Kálfholti / Jón Björnsson 8,48
5 Vornótt frá Hólabrekku / Líney María Hjálmarsdóttir 8,57
6 Veigar frá Narfastöðum / Sölvi Sigurðarson 8,52
3 Þruma frá Akureyri / Helga Árnadóttir 8,61
4 Randalín frá Efri-Rauðalæk / Haukur Tryggvason 8,58
1 Ás frá Skriðulandi / Guðmundur Karl Tryggvasson 8,74
2 Senjor frá Syðri-Ey / Baldvin Ari Guðlaugsson 8,68
B flokkur B-úrslit
1-2 Týr frá Yzta-Gerði / Birgir Árnason 8,49
1-2 Gletting frá Árgerði / Stefán Birgir Stefánsson 8,49
3 Auður frá Ytri-Hofdölum / Vignir Sigurðsson 8,46
4 Hekla frá Tunguhálsi II / Líney María Hjálmarsdóttir 8,43
5 Frikka frá Fyrirbarði / Sæmundur Sæmundsson 8,38
6 Þytur frá Húsavík / Líney María Hjálmarsdóttir 8,37
7 Perla frá Akureyri / Þorbjörn Hreinn Matthíasson 8,34
8 Brynhildur frá Möðruvöllum / Fanndís Viðarsdóttir 8,31
Ungmennaflokkur A-úrslit
1 Árni Gísli Magnússon / Ægir frá Akureyri 8,29
2 Karen Hrönn Vatnsdal / Sigurrós frá Eyri 8,28
3 Björgvin Helgason / Tónn frá Litla-Garði 8,25 H
4 Skarphéðinn Ragnarsson / Lukka frá Hóli 8,25 H
5 Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir / Kvika frá Glæsibæ 2 8,23
6 Valgeir Bjarni Hafdal / Vísir frá Glæsibæ 2 8,07
7 Birna Hólmgeirsdóttir / Prins frá Torfunesi 8,01
8 Fine Cordua / Nagli frá Hrafnsstöðum 8,00
Unglingaflokkur A-úrslit
1 Nanna Lind Stefánsdóttir / Vísir frá Árgerði 8,68
2 Anna Kristín Friðriksdóttir / Glaður frá Grund 8,63
3 Fanndís Viðarsdóttir / Amanda Vala frá Skriðulandi 8,51
4 Ólafur Ólafsson Gros / Fjöður frá Kommu 8,42
5 Katrín Birna Vignisd / Prinsessa frá Garði 8,38
6 Örn Ævarsson / Askur frá Fellshlíð 8,37
7 Sigurgeir Njáll Bergþórsson / Hátíð frá Blönduósi 8,29
8 Eyrún Þórsdóttir / Stígur frá Skriðu 8,25
Barnaflokkur A-úrslit
7 Kolbrún Lind Malmquist / Ágúst frá Sámsstöðum 8,21
8 Iðunn Bjarnadóttir / Njála frá Reykjavík 8,15
5 Kristín Ragna Tobíasdóttir / Lína frá Árbakka 8,24 H
6 Thelma Dögg Tómasdóttir / Greifi frá Hóli 8,24 H
3 Matthías Már Stefánsson / Blakkur frá Bergstodum 8,31
4 Sylvía Sól Guðmunsdóttir / Freysting frá Króksstöðum 8,28
1 Egill Már Þórsson / Snillingur frá Grund 2 8,38 H
2 Sara Þorsteinsdóttir / Svipur frá Grund II 8,38 H
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH