KB-mótaröðin: Gæðingakeppni
Næsta mót KB-mótaraðarinnar verður laugardaginn 27. mars. Þá verður gæðingakeppni í gegnum höllina, sem sagt á beinni braut. Mótið hefst kl.20:00.
B flokkur: hægt tölt, brokk, yfirferð og frjáls ferð.
A flokkur: tölt, brokk, skeið og frjáls ferð. (6 í holli, 4 ferðir). Minnum fólk á að koma vel klætt þar sem að höllin verður opin í báða enda.
Liðakeppni (lágmark 3 í liði – opin keppni)
Einstaklingskeppni (opin keppni)
Barna-, unglinga-, ungmenna-, 1.flokkur, 2.flokkur (minna keppnisvanir)
Hvert lið þarf að hafa sitt sérkenni !! Sérstök heiðursverðlaun eru veitt því liði sem þykir hafa sýnt skemmtilegustu liðsheildina.
Skráningar þurfa að berast fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 24.mars á netföngin: [email protected], [email protected] eða í s. 691-0280 eða 699-6116.
Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisflokkur, nafn knapa, nafn hests,litur hests, aldur hests, lið Skráningargjald er 1500.kr fyrir 1.,2.flokk- og ungmenni. (1.000 kr.fyrir annan hest) 1000 kr.fyrir börn og unglinga. Greiðist inn á reikning 0326-13-004810-4810790399 í síðasta lagi miðvikudaginn 24.mars annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á [email protected] þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa og hest er verið að borga. Aðgangseyri 500kr.
Mótaröðin fer fram í reiðhöllinni í Borganesi og er haldin á vegum hestamannafélaganna Faxa & Skugga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH