Ræktunarbú ársins hjá HEÞ
Minnum á haustfund HEÞ sem verður haldinn í Ljósvetningabúð í kvöld, 12. nóvember kl. 20:30. Á fundinum verður valið ræktunarbú ársins á félagssvæðinu. Eftirtalin bú eru tilnefnd:
Efri-Rauðilækur, Grund II, Litla-Brekka, Komma, og Torfunes.
Auk þess hljóta ræktendur efstu hrossa í kynbótadómi viðurkenningar. Sú nýbreytni verður að veita ræktendum viðurkenningar fyrir efstu hross í hverjum aldursflokki. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur fer yfir sviðið í hrossaræktinni og Jónas Vigfússon Litla-Dal flytur erindi um áverkaskráningar kynbótahrossa sumarið 2009. Kaffiveitingar í boði Samtakanna.
www.hryssa.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH