Ráslisti í Gæðingafimi Meistaradeildar Líflands 2021

  • 9. mars 2021
  • Fréttir

Á fimmtudaginn n.k. verður keppt í gæðingafimi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum á Ingólfshvoli í Ölfusi. Húsið opnar klukkan 18:00 og hefst mótið klukkan 19:00. Nú er loksins hægt að kaupa miða í stúkuna – en 100 miðar eru í boði. Miðasala fer eingöngu fram á Tix.is, getur hver aðili keypt að hámarki 5 miða og gera þarf grein fyrir hver muni noti miðann, ásamt símanúmeri og kennitölu. Áfram verður hægt að fylgjast með í beinni á Rúv2 eða í gegnum streymi á Alendis TV.

Gæðingafimin er krefjandi keppnisgrein þar sem reynir á ganghæfleika, þjálfunarstig hests og knapa, fegurð, kraft og glæsileik. Sýningin er spuni og ræðst árangur m.a. af útfærslu og frumkvæði knapa. Sýnandi fær 4-4,5 mínútur til þess að sýna það besta sem knapi og hestur hefur upp á að bjóða. Dómarar verða 10, dæma þeir í fimm pörum – þar sem hæsta og lægsta einkunn dettur út. 

Í fyrra voru það Elin Holst og Frami sem sigruðu og eru þau á ný skráð til leiks. Nú í kvöld var dregið í ráslista og má þar sjá hvert stjörnuparið á eftir öðru. Það er því ljóst að leikar verða mjög spennandi þetta árið.

 

Hér að neðan má sjá ráslista kvöldsins:

  1. Hulda Gústafsdóttir og Sesar frá Lönguskák – Hestvit / Árbakki
  2. Sigursteinn Sumarliðason og Skráma frá Skjálg – Skeiðvellir / Árheimar
  3. Ragnhildur Haraldsdóttir og Úlfur frá Mosfellsbæ – Ganghestar / Margrétarhof
  4. Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Héðinn Skúli frá Oddhóli – Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð
  5. Helga Una Björnsdóttir og Hraunar frá Vorsabæ II – Hjarðartún 
  6. Arnar Bjarki Sigurðarson og Örn frá Gljúfurárholti – Hrímnir / Hest.is
  7. Olil Amble og Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum – Gangmyllan
  8. Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu – Top Reiter
  9. Jóhann Kristinn Ragnarsson og Kvarði frá Pulu – Hestvit / Árbakki
  10. Glódís Rún Sigurðardóttir og Glymjandi frá Íbishóli – Ganghestar / Margrétarhof
  11. Villiköttur – Skeiðvellir / Árheimar
  12. Benjamín Sandur Ingólfsson og Smyrill frá V-Stokkseyrarseli – Hrímnir / Hest.is
  13. Þórdís Erla Gunnarsdóttir og Fengur frá Auðsholtshjáleigu – Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð
  14. Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri II – Top Reiter
  15. Elin Holst og Frami frá Ketilsstöðum – Gangmyllan
  16. Jakob Svavar Sigurðsson og Hálfmáni frá Steinsholti – Hjarðartún
  17. Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi – Hestvit / Árbakki 
  18. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Ölnir frá Akranesi – Ganghestar / Margrétarhof
  19. Villiköttur – Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð
  20. Hanna Rún Ingibergsdóttir og Grímur frá Skógarási – Top Reiter
  21. Matthías Leó Matthíasson og Taktur frá Vakursstöðum – Skeiðvellir / Árheimar
  22. Þórarinn Ragnarsson og Leikur frá Vesturkoti – Hjarðartún
  23. Viðar Ingólfsson og Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu 2 – Hrímnir / Hest.is
  24. Bergur Jónsson og Glampi frá Ketilsstöðum – Gangmyllan
  25. Hanne Oustad Smidesang og Roði frá Hala – Uppboðssæti

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link