Suðurlandsdeildin – úrslit úr fjórgangi
Vilborg Smáradóttir og Sigur frá Stóra-Vatnsskarði voru hlutskörpust í úrslitum áhugamanna. Mynd: Aðsend.
Virkilega sterk fjórgangskeppni fór fram í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum í kvöld þar sem 56 knapar tóku þátt. Í Suðurlandsdeildinni keppa áhuga- og atvinnumenn saman í forkeppni en svo eru úrslit fyrir hvorn flokk fyrir sig.

Lið Árbæjarhjáleigu II var stigahæsta lið kvöldsins. Mynd: Aðsend.
Í kvöld var það lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns sem stóð stigahæst eftir fjórganginn en Arnhildur Helgadóttir á Draumhyggju frá Eystra-Fróðholti endaði í 3. sæti í flokki atvinnumanna, Hekla Katharína Kristinsdóttir á Lilju frá Kvistum endaði í 10. – 11. sæti atvinnumanna, Rúna Björg Vilhjálmsdóttir á Aroni frá Þóreyjarnúpi endaði í 2. sæti í flokki áhugamanna og Rakel Nathalie Kristinsdóttir á Krás frá Árbæjarhjáleigu endaði í 7.-8. sæti í flokki áhugamanna. Glæsilegur árangur þar.
Úrslit í báðum flokkum voru geysi spennandi og virkilega sterkir hestar sem öttu þar kappi. Í flokki atvinnumanna var það Þór Jónsteinsson á Frá frá Sandhól úr liði Efsta-Sels sem stóð uppi sem sigurvegari og í flokki áhugamanna var það Vilborg Smáradóttir á Sigri frá Stóra-Vatnsskarði úr liði Smiðjan Brugghús. Virkilega sterk úrslit.
Niðurstöður úrslita má sjá hér að neðan.

Efstu knapar og hestar í flokki atvinnumanna. Mynd: Aðsend
| A úrslit atvinnumanna í fjórgang 2021 | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Þór Jónsteinsson | Frár frá Sandhól | 7,30 |
| 2 | Elin Holst | Gígur frá Ketilsstöðum | 7,17 |
| 3 | Arnhildur Helgadóttir | Draumhyggja frá Eystra-Fróðholti | 7,10 |
| 4 | Hanna Rún Ingibergsdóttir | Harpa frá Engjavatni | 6,97 |
| 5 | Elín Magnea Björnsdóttir | Melódía frá Hjarðarholti | 6,93 |
| 6 | Hjörtur Magnússon | Viðar frá Skeiðvöllum | 6,83 |
| 7 | Brynja Kristinsdóttir | Sóley frá Blönduholti | 6,73 |

Efstu knapar og hestar í flokki áhugamanna. Mynd: Aðsend
| A úrslit áhugamanna í fjórgang 2021 | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Vilborg Smáradóttir | Sigur frá Stóra-Vatnsskarði | 6,77 |
| 2 | Rúna Björg Vilhjálmsdóttir | Aron frá Þóreyjarnúpi | 6,77 |
| 3 | Árni Sigfús Birgisson | Baldursbrá frá Ketilsstöðum | 6,67 |
| 4 | Elín Árnadóttir | Blær frá Prestsbakka | 6,57 |
| 5 | Bertha María Waagfjörð | Amor frá Reykjavík | 6,47 |
| 6 | Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg | Fengsæll frá Jórvík | 6,43 |
Eftir fyrstu tvær greinar Suðurlandsdeildarinnar er það lið Byko sem leiðir með 186 stig, í öðru sæti er Smiðjan Brugghús með 156 stig og þriðja sæti lið Húsasmiðjunnar með 153 stig.
| Sæti | Lið | Samtals |
| 1. | Byko | 186 |
| 2. | Smiðjan Brugghús | 156 |
| 3. | Húsasmiðjan | 153 |
| 4. | Kvistir | 149 |
| 5. | Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún | 147 |
| 6. | Krappi | 139,5 |
| 7. | Efsta-Sel | 116 |
| 8. | Fet/Þverholt | 112,5 |
| 9. | Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær | 111,5 |
| 10. | Toltrider | 104,5 |
| 11. | Heklu hnakkar | 96,5 |
| 12. | Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð | 89,5 |
| 13. | Kjarr | 39 |
| 14. | Káragerði/Lokarækt | 24 |
Það eru þó fjölmörg stig eftir í pottinum enda þrjár greinar eftir, framundan eru því hörku spennandi deild og mjótt á munum.
Næsta grein er fimmgangur og fer hún fram í Rangárhöllinni á Hellu þann 30. mars! Sjáumst þar í gegnum AlendisTV!
Mynd 1 – lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns f.v. Arnhildur Helgadóttir, Hekla Katharína Kristinsdóttir, Rakel Nathalie Kristinsdóttir, Rúna Björg Vilhjálmsdóttir, Anna Margrét Geirsdóttir og Hans Þór Hilmarsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH