Framboðin birt
Kjörnefnd LH hefur birt nöfn þeirra sem gefa kost á sér til setu í stjórn og varastjórn LH. Eins og áður hefur komið fram hafa tveir gefið kost á sér til formennsku samtakanna, þeir Kristinn Hugason og Stefán Ármannson. Tíu framboð hafa borist til aðalstjórnar. Þar á meðal gefa þrír meðlimir fyrri stjórnar kost á sér, þau Andrea Þorvaldsdóttir, Sigurður Ævarsson og Þorvarður Helgason. Fimm framboð hafa borist til varastjórnar.
Enn geta þingfulltrúar gefið kost á sér en framboðsfrestur rennur út í hádeginu föstudaginn 7. nóvember. Ný stjórn verður kosin á aukaþingi sem fram fer á laugardag.
Tilkynning Kjörnefndar:
„Laugardaginn 8. nóvember n.k. verður þingfundi 59. landsþings Landssambands hestamannafélaga fram haldið þar sem kjörin verður ný stjórn og varastjórn sambandsins til næstu tveggja ára. Fundarstaður verður E-salur á þriðju hæð í húsakynnum ÍSÍ og LH að Engjavegi 6, Reykjavík.
Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum.
Varastjórn skal skipuð fimm mönnum og taka þeir sæti í aðalstjórn í samræmi við atkvæðahlutfall.
Á fyrsta stjórnarfundi að afloknu landsþingi LH skal stjórn LH skipta með sér verkum, kjósa varaformann, ritara og gjaldkera úr hópi stjórnarmanna.
Eftirtaldir gefa kost á sér til stjórnarsetu:
Formaður:
Tvö framboð hafa borist til formennsku samtakanna.
Kristinn Hugason, Spretti
Stefán G. Ármannsson, Dreyra
Aðalstjórn :
Kjósa skal 6 aðalstjórnarmenn. Borist hafa 10 framboð.
Eftirtaldir gefa kost á sér í aðalstjórn:
Hrönn Kjartansdóttir, Herði
Andrea Þorvaldsdóttir, Létti
Sigurður Ævarsson, Sörla
Þorvarður Helgason, Fáki
Jóna Dís Bragadóttir, Herði
Ólafur Þórisson, Geysi
Eyþór Gíslason, Glað
Stella Björg Kristinsdóttir, Spretti
Haukur Baldvinsson, Sleipni
Sigurður Ágústsson, Neista
Varastjórn:
Kjósa skal 5 varastjórnarmenn. Borist hafa 5 framboð.
Eftirtaldir gefa kost á sér í varastjórn:
Erling Sigurðsson, Spretti
Petra Kristín Kristinsdóttir, Sindra
Rúnar Þór Guðbrandsson, Herði
Magnús Andrésson, Stíganda
Helga B. Helgadóttir, Fáki“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH