Eyjó og Rúna tryggðu sér öruggt sæti í úrslitum T2-
Eyjólfur Þorsteinsson og Ósk frá Þingnesi eru í öruggri forystu slaktaumatöltskeppninnar (T2) á HM eftir að hafa hlotið 8,73 fyrir leikandi og skemmtilega sýningu. Eyjólfur og Ósk hreyf áhofendur í St. Radegund með sér og uppskar mikinn fögnuð þegar einkunnir voru lesnar upp.
Önnur inn í úrslit er ríkjandi heimsmeistari Tina Kalmo Pedersen frá Noregi og Kolgrimur fran Slatterne sem hlutu 8,37 í einkunn og hin danska Samantha Leidesdroff sem situr Casanova com Hrafnsholt er í þriðja sæti sem stendur, þau hlutu 8,27 fyrir sýningu sína. Fjórða er önnur dönsk reiðkona, Anne-Sofie Nielsen á Nökkva fra Ryethøj en þau hlutu 7,97
Þá er Rúna Einarsdóttir á hestagullinu Frey vom Nordesternhof einnig með öruggt sæti í A-úrslitum, varð jöfn hinni sænsku Camillu Hed á Thór fran Jarsta í 5.-6. sæti með 7,80.
Svíar áttu góðu gengi að fagna og vekur það athygli að tveir ungir knapar, þær Johanna Berg á Svarti vom Hochwald og Linda Antonsson á Isak från Dirhuvud hlutu sæti í B-úrslitum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH