Sköpulagsdómar á sviði – myndir-
Sól skein á keppendur og áhorfendur Heimsmeistarmótsins í St. Radegund í dag þegar byggingardómar kynbótahrossa fór fram. Aðstaðan sem látin hefur verið upp til þess er til fyrirmyndar, hrossin voru sýnd dómurum á sviði fyrir framan áhorfendapalla, sem voru þéttsetnir áhorfendum í allan dag sem þykir afar gott , miðað við fyrsta dag móts.
Dómar Íslensku hrossanna voru í samræmi við fyrri dóma, jöfnuðu flest öll hrossin dóma sína eða hækkuðu. Þó var ein undantekning á.
Fyrsti fulltrúi Íslands, Smá frá Þúfu hækkaði fyrir fótagerð og hófa og hlaut í einkunn 8,03. Helga Una Björnsdóttir, sýnandi hryssunar var að vonum ánægð með dóminn. Rauðhetta frá Kommu jafnaði dóm sinn, 8,11. Það gerði einnig Gjöf frá Magnússkógum sem hlaut 8,22.
Feykir frá Háholti hlaut glæsilega 8,66, hækkaði úr 8,50 og var næsthæst dæmdi stóðhestur dagsins. Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu jafnaði sinn dóm, 8,50. Glotti frá Sveinatungu lækkaði hins vegar sinn dóm, hlaut 7,98 sem er nokkuð frá þeim dómi sem hann hlaut í vor, en þá fékk hann 8,24.
Hæfileikadómar kynbótahrossa fara fram á morgun og verður gaman að sjá hvernig íslensku hrossin koma út í samanburði við nokkur af hæst dæmdu hrossum meginlandsins.
Efsta byggingardóm hryssa hlaut Von frá Vigra, 8,68 í einkunn, sem kom fram fyrir hönd Noregs en hestur dagsins var eflaust hin reisulegi Prins frá Knutshyttan í Svíþjóð. Hann hlaut glæsilega 8,81 í einkunn enda glæsilegur hestur, bæði stór, háfættur og hálslangur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH