Hópreið að Hafravatni – ferðasaga

  • 17. maí 2011
  • Fréttir
Hópreið að Hafravatni - ferðasaga

Eiðfaxa barst þessi skemmtilega ferðasaga sem skráð er af Halldóri H. Halldórssyni:

Ferðanefnd Andvara stóð fyrir ferð að Hafravatni laugardaginn 14. maí, lagt skyldi af stað kl. 13:00 frá félagsheimili Andvara. Helgina áður voru aðstæður kannaðar við Hafravatnsréttina og ferðaáætlun gerð, gamla girðingin umhverfis réttarbrotin hafði verið fjarlægð og því nauðsynlegt að hafa rafmagnsgirðingu haldbæra. Laust fyrir kl. 13:00 hafði ég ekki séð miklar hreyfingar á fólki að undirbúa sig fyrir ferðina svo ég hringdi í Steina Páls yfirferðafrömuð Andvara. Halló er sagt á hinum endanum, er þetta Steini? já, Dóri hérna, er það gott eða slæmt spurði Steini,  ha, hva, hvu, ja bara svona medium stamaði ég. Hefurðu hlerað eftir þáttöku spurði ég, nei hef ekki hugmynd, en það er spáð minni snjókomu en var í síðustu ferð. Jói og Ingibjörg formkona koma með rútuna uppeftir, jæja sagði ég en það er hölt hjá mér meri og ég er því illa hestaður, þú verður að kom, þú skipulagðir þetta, ég rata ekki neitt sagði Steini. Ekki er deilt við Steina sem er þverari en all það sem þvert er.

Lagt var af stað kl. 13:15 frá félagsheimilinu, fimm hófum við för frá Andvara, í Heimsenda bættust þrjú við, einn í Hvarfahverfi Kópavogs og ein úr Fjárborg alla tíu manns. Öðruvísi mér áður brá, þegar vart voru færri en þrjátíu manns í svona ferðum. Kannski einhverjir hafi óttast að missa af Júróvísjón, þó fáir kannist við að horfa á það afþreyingarefni þá er merkilegt hvað fólk veit mikið um fyrirbærið. Riðið var frá Heimsenda um Þingahverfi og hjá Vatnsenda í Víðidal og að áningunni við Rauðavatn þar var áð dágóða stund og hinkrað eftir Óla Blöndal og þeim Klemens og Kristínu úr Grundahvarfi, en þau ætluðu að koma í humátt á eftir. Eftir um hálftíma bið var ákveðið að dóla áfram og riðið yfir Reynisvatns- og Hólmsheiðar í Óskot þar sem var næsta stopp. Í Óskot komu hjón ríðandi úr Fjárborg sem ætluðu ekki lengra, konan hét Sigríður og voru allar þrjár konurnar sem samankomnar voru í Óskoti á þeirri stundu nöfnur. Jæja Steini,  hver er kona dagsins spurði ég, það hlýtur að vera Sigga heyrðist í Axel. Frá Óskoti var farið yfir brú á úfalli Hafravatns í gegnum sumarhúsabyggðina og á Hafravatnsveg í Hafravatnsrétt þar sem rútan og formannshjónin ofl. fólk biðu okkar. Eftir að sprett hafði verið af hrossunum og þeim sleppt í girðinguna var slegið upp veislu. Forréttur var hrátt hrefnukjöt með tvennskonar sósum, aðalréttur grillaðar pylsur með alles og köldum bauk eða coke, og í eftirrétt heitar vöfflur, bakaðar á staðnum, með sultu og rjóma. For- og eftiréttur voru í boði Steina Páls, algert gourmé, þeir sem sjá sér ekki fært að mæta í svona veislu geta bara étið það sem úti frýs.

Eftir góða áningu var riðið austur Hafravatnsveg að Dallandi, fyrrum var gjarnan farið með Seljadalsá á slóða sem liggur á milli Hafravatns og Langavatns. Nú er búið að girða í brúarstöpla Seljadalsár og þó hlið sé á veginum þá er því lokað með keðju og heyglum hent hvort sé læst með hengilás eða ekki auk þess sem fyrrgreindur slóði er grýttur og leiðinlegur yfirferðar. Frá Dallandi var riðið á fínum reiðvegi með Nesjavallaræðinni inn á Hólmsheiði og á nýjan reiðveg sem liggur á nýlega uppbyggðan reiðveg, sem áður var línuvegur, ofan við Fjárborg og í Almannadal. Þar beið hópurinn eftir undirrituðum og spúsu, en við höfðumst dregist afturúr við hestaskipti. Riðið var niður Almannadal og í undirgöng við Rauðhóla þar sem áð var stund áður en farið var austur með Elliðavatni í Þingnes sem var lokaáning áður en riðið var um Heimsenda og í Andvarahverfið um kl. 18:30.

Alls voru riðnir tæpir 32 km. í ferðinni, ferðatími 2,55 klst. áningar 2,20 klst. Heild 5 klst. og 15 mín. Meðal ferðahraði 12,5 km. klst.

Næsta ferð verður svo grilltúrinn í Gjármót þann 28. maí nk. nánar auglýst síðar. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link