Sigurbjörn ræðir hrossasölu
Fimmtudagskvöldið 13. nóvember mun Hrossaræktafélag Biskupstungna halda aðalfund félagsins kl. 20 á Café Mika Reykholti að er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Gestur fundarins er Sigurbjörn Bárðason Oddhól, hrossaræktandi og tamningarmeistari.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar lagðir fram.
3. Kosningar.
4. Kynnt dagsskrá vetrarins.
5. Önnur mál.
Kaffi hlé
6. Gestur fundarins Sigurbjörn Bárðason fer yfir stöðu mála varðandi hrossasölu, kynnir fyrir okkur hrossaræktina á Oddhól og ræðir ýmis önnur mál sem ber á góma.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH