Allra sterkustu 1. maí – takið daginn frá!
Árni Björn og Skíma frá Kvistum á Allra sterkustu fyrir nokkrum árum
Allra sterkustu styrktarmót landsliðs Íslands í hestaíþróttum fer fram laugardaginn 1. maí á degi íslenska hestsins í Samskipahöllinni Spretti.
Keppt verður í tölti, fjórgangi og fimmgangi, sex landsliðsknapar í hverri grein, tveir inná í einu og tveir efstu mætast í einvígi í úrslitum. Á milli greina verða sýndir stóðhestar og kynbótahryssur auk sýningaratriða frá U21-landsliðshópnum.
ATH takmarkaður miðafjöldi, í boði verða allt að 200 miðar í sal. Fyrstur kemur fyrstur fær, miðasala auglýst síðar.
Stóðhestaveltan verður á sínum stað en eigendur hátt dæmdra stóðhesta hafa gefið toll til stuðnings íslenska landsliðinu. Verðið á tollinum er 45.000 kr. og verða þeir settir í sölu á netinu á hádegi föstudaginn 30. apríl, nánar auglýst síðar.
Fyrir þá sem ekki ná miðum í salinn verður mótinu streymt á Alendis.
Þetta er helsta fjáröflunarverkefni íslenska landsliðsins í hestaíþróttum á hverju ári og leggur grunninn að starfi og undirbúningi liðsins fyrir HM.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH