Frábært lokakvöld Meistaradeildar – Árni Björn Meistarinn 2021
Úrslitum í Tölti T1 og Flugskeiði P2 er lokið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum og þar með er keppnistímabili deildarinnar lokið. Efstur eftir forkeppni í tölti var Jakob Svavar Sigurðsson en í öðru sæti var Viðar Ingólfsson og Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu. Keppnin endaði þó þannig að Árni Björn og Ljúfur frá Torfunesi unnu keppnina með yfirburðum en þeir unnu sig upp úr 4. til 5. sæti í það fyrsta með einkunnina 9,0. Mótið var sent út í beinni á Rúv2 og streymt á Alendis Tv, bæði hérlendis eða erlendis. Liðaplatta kvöldsins í Tölti hlaut lið Hestvits.
Í Flugskeiði var keppnin gríðarlega hörð enda margreyndir verðlaunahestar í braut. Strax eftir fyrri sprett stóðu þeir Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu á tímanum 5,77 s. en mjótt var á munum á milli þeirra og Sigursteins Sumarliðasonar og Krókusar frá Dalbæ sem fóru á tímanum 5,85 sekúndum. Það var svo lið Top Reiter sem tók liðaplattann í Flugskeiðinu.
Í heildar liðakeppninni var það lið Top Reiter sem vann liðakeppnina í samanlögðum stigum með 394,5 stig og voru þau vel að því komin. Liðsfélagar voru þau Teitur Árnason, Árni Björn Pálsson, Hanna Rún Ingibergsdóttir, Eyrún Ýr Pálsdóttir og Konráð Valur Sveinsson.
Í einstaklingskeppninni varð stigahæstur Árni Björn Pálsson í liði Top Reiter með 64 stig.
Hér fyrir neðan eru niðurstöður kvöldsins:
Tölt T1 – Úrslit
- Árni Björn Pálsson / Ljúfur frá Torfunesi – 9,00
- Jakob Svavar Sigurðsson / Hálfmáni frá Steinsholti – 8,67
- Viðar Ingólfsson / Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu II – 8,44
- Sólon Morthens / Katalína frá Hafnarfirði – 8,11
- Jóhanna Margrét Snorradóttir / Bárður frá Melabergi – 8,11
- Matthías Leó Matthíasson / Taktur frá Vakurstöðum – 7,56
Flugskeið P2 – Niðurstöður
1.Konráð Valur Sveinsson – Top Reiter – 5,77
2.Sigursteinn Sumarliðason – Skeiðvellir / Árheimar – 5,85
3.Árni Björn Pálsson – Top Reiter – 5,89
4.Jakob Svavar Sigurðsson – Hjarðartún – 5,94
5.Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson – Ganghestar / Margrétarhof – 5,95
6.Gústaf Ásgeir Hinriksson – Hestvit / Árbakki – 6,00
7.Hans Þór Hilmarsson – Hjarðartún – 6,02
8.Daníel Gunnarsson – Hrímnir / Hest.is – 6,07
9.Freyja Amble Gísladóttir – Gangmyllan – 6,09
10.Viðar Ingólfsson – Hrímnir / Hest.is – 6,10
11.Davíð Jónsson – Skeiðvellir – 6,10
12.Jóhann Magnússon – Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð – 6,11
13.Sylvía Sigurbjörnsdóttir – Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð – 6,18
14.Sigurður Vignir Matthíasson – Ganghestar / Margrétarhof – 6,20
15.Glódís Rún Sigurðardóttir – Ganghestar / Margrétarhof – 6,20
16.Benjamín Sandur Ingólfsson – Hrímnir / Hest.is – 6,31
17.Jóhann Kristinn Ragnarsson – Hestvit / Árbakki – 6,33
18.Þórdís Erla Gunnarsdóttir – Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð – 6,34
19.Hinrik Bragason – Hestvit / Árbakki – 6,48
20.Sólon Morthens – Skeiðvellir / Árheimar – 6,50
21.Sigurður Sigurðarson – Gangmyllan – 6,53
22.Ævar Örn Guðjónsson – Gangmyllan – 6,86
23.Eyrún Ýr Pálsdóttir – Top Reiter – 0,00
24.Elvar Þormarsson – Hjarðartún – 0,00


Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH