Hefur fengið sig fullsadda af ágangi hestamanna
Þessi stígur er ætlaður öllum en María skilur ekki hvers vegna hestafólk ríður þar um Ljósmynd: Facebook
Töluverð umræða hefur skapast á milli mismunandi útivistarhópa undanfarnar vikur og þá sérstakalega eftir fréttaflutning af hestaslysi sem átti sér stað nú fyrir stuttu.
Á vef Morgunblaðsins er nú frétt þar sem María Ögn Guðmundsdóttir, hjólreiðarkona sem samkvæmt Mbl hefur komið að skipulagsvinnu við lagningu hjólastíga, fer mikinn og hefur fengið sig fullsadda af ágangi hestafólks.
„Það er nefnilega endalaust verið að kvarta undan því að aðrir vegfarendur geta gert hestunum bilt við og þannig ógnað bæði hesti og knapa, sem er ósköp skiljanlegt, en hvers vegna fara þá hestamenn á hestum sínum um stíga þar sem þeir vita fyrir víst að líkur eru á að þeir mæti hjólandi, hlaupandi og gangandi vegfarendum,“ segir María Ögn í samtali við mbl.is.
Guðni Halldórsson, formaður LH, sagði í samtali við Eiðfaxa um daginn. „Það er eilíf barátta forystumanna í hestamennskunni að aðgreina stíga og fjármagna reiðvegi. Við höfum verið í sambandi við og stefnum á frekari fundi með samgönguráðherra, þar sem markmiðið er að sækjast eftir auknu fjármagni til reiðvegagerðar.“ En viðtalið í heild sinni má lesa með því að smella hér.
Ljóst er að vitundarvakning verður að verða á milli mismunandi útivistarhópa svo allir geti notið sinna áhugamála í sátt og samlyndi við aðra.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH