Skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar á næsta leyti
Frá keppni á skeiðleikum mynd: Eiðfaxi
Nú styttist óðfluga í það að allir fljótustu vekringar landsins fari að etja kappi hver við annan á Skeiðleikum Baldvins og Þorvaldar á Brávöllum á Selfossi. Leikarnir hafa fest sig í sessi sem einhverjir skemmtilegustu viðburðir keppnistímabilsins í hestaíþróttum.
Skeiðleikarnir verða með hefðbundni sniði og nú hafa mótadagsetningar verið ákveðnar. Stigahæsti knapi tímabilsins fær 100.000 gjafabréf frá Baldvini og Þorvaldi og það er því til mikils að vinna. Skeiðgreinar hafa verið í mikilli uppsveiflu síðustu ár og er engin ástæða til að ætla að það verði breyting á því í ár.
Skeiðfélaginu hlakkar til að taka á móti öllum á Brávöllum á Selfossi í sumar. Skeiðleikarnir verða einnig sýndir í beinni útsendingu á AlendisTV.
Mótadagskrá.
26.maí – 1.Skeiðleikar
23.júní – 2.Skeiðleikar
14.júlí – 3.Skeiðleikar
28.júlí – 4.Skeiðleikar
18.ágúst – 5.Skeiðleikar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH