Jarl frá Miðkrika er fallinn
Jarl frá Miðkrika var felldur í gær í kjölfarið á fótbroti sem hann varð fyrir. Þetta kemur fram á Facebook síðu sem er haldin úti til heiðurs honum.
Það er óhætt að segja að Jarl sé af mörgum talinn einn hæfileikaríkasti fjóganskeppnishestur sem komið hefur fram og ber hann yfirleitt á góma þegar hestamenn ræða um hvaða hestar séu eftirminnilegustu keppnishestar sögunnar.
Jarl var undan Andvara frá Ey I og Huld frá Hvolsvelli, ræktandi hans er Eyþór Óskarsson. Jarl var fæddur árið 1995 og varð því 26.vetra.
Frægðarsól hans skein ef til vill skærst þegar Stian Pedersen náði í heimsmeistaratitla á honum þrjú mót í röð. Hann varð samanlagður heimsmeistari í fjógangi árin 2003 og 2005 og heimsmeistari í tölti og fjórgangi 2007.
Jarl tók þá einnig þátt í mörgum heimsmeistaramótum eftir þetta, með öðrum knöpum, hvar hann var yfirleitt í fremstu röð.
Þá gerði Jarl það einnig gott sem ræktunarhestur og hlaut hann heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2019.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH