„Alltaf verið svolítið veik fyrir vekurð“
Hjónin Gunnar Þorgeirsson og Gréta Brimrún Karlsdóttir bændur á Efri-Fitjum í Víðidal eru bæði Vestur-Húnvetningar. Gunnar ólst upp á Efri-Fitjum en Gréta er frá Harastöðum í Vesturhópi. Jörðina keyptu þau árið 1994 af foreldrum Gunnars og búa nú þar með sauðfé ásamt því að rækta hross með góðum árangri.
„Hrossin eru tamin og þjálfuð mikið til hér heima en svo eru þau sem eiga að fara í kynbótadóm send í burtu til frekari þjálfunar. Tryggvi Björnsson á Blönduósi hefur sýnt flest okkar hross með góðum árangri. Svo prófuðum við í vor að senda bræðurna Bassa og Brenni suður á land til Daníels Jónssonar og ekki sjáum við eftir því.“
Þetta viðtal og mun meira af skemmtilegu efni má nálgast í nýjasta tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH