Opið gæðingamót Harðar

  • 2. maí 2021
  • Fréttir
Árlegt gæðingamót Harðar verður haldið helgina 8-9. maí og verður það opið öllum!
Skráning verður frá laugardeginum 1.maí til miðvikudaginsins 5 maí. Ef óskað er eftir að skrá eftir þann tíma er skráningargjaldið tvöfalt.
Skráning er í gegnum Sportfeng.
Eftirfarandi flokkar eru í boði en skráningargjaldið er 5000kr í fullorðins flokkana og 3500kr í yngri flokkana og skeiðgreinar.
Eftirfarandi greinar verða í boði: 
– A-flokkur (gæðingaflokkur 1)
– A-flokkur áhugamenn (gæðingaflokkur 2)
– B-flokkur (gæðingaflokkur 1)
– B-flokkur áhugamenn (gæðingaflokkur 2)
– Barnaflokkur
– Unglingaflokkur
– A-flokkur ungmenna
– B-flokkur ungmenna
– Pollar teymdir
– Pollar ríða sjálfir
– Gæðingatölt (Skrá sem T7)
– 100 metra skeið (P2)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link