Hvernig á samtalið að eiga sér stað!?

  • 5. maí 2021
  • Fréttir

Dómari að störfum

Í viðtali sem Eiðfaxi tók við Sigríði Pjetursdóttur, yfirdómara Meistaradeildar í hestaíþróttum, og hlusta má á í heild sinni með því að smella hér, nefnir hún atriði tengd samskiptum dómara við knapa, eigendur hrossa, áhorfendur og aðra sem taka þátt í og fylgjast með mótum, sem vert er að gefa betri gaum.

Í viðtalinu segir Sigríður, aðspurð um hvað henni finnist einkenna veturinn í Meistaradeildinni, „Við dómarar vorum undir meiri smásjá en áður og mér fannst mikið áreiti á okkur, auðvitað stöndum við það af okkur en það má fara að hugsa það til framtíðar hvernig þessi samskipti eiga að eiga sér stað.“

Þurfum að búa til vettvang

Mikið hefur verið talað um það í hestheimum að símhringingar, smáskilaboð á messenger og í smsum, illt umtal og annað áreiti sé það sem bíði margra dómara bæði fyrir og eftir keppni.

Að sjálfsögðu eru dómarar ekki undanskildir gagnrýni, þvert á móti, þeir eiga að geta tekið henni og vera það faglega sterkir að þeir geti staðið fyrir máli sínu og rökstutt sínar einkunnir. En þarf ekki að verða til einhver vettvangur þar sem knapar og dómarar geta hist, rætt saman á málefnalegum nótum en ekki að hestamenn, hvort sem um er að ræða dómara, knapa eða aðra hagsmunaaðila, láti gamminn geisa í facebook skilaboðum eða kommentum.

Kannski er það næsta mál á dagskrá, að komið yrði á samtalstíma á mótsstað þar sem dómarar sitja fyrir svörum og svara spurningum, hvort sem það yrði maður á mann, í gegnum síma eða jafnvel á tölvupósti. Þetta gæti t.d. verið eftir að forkeppni lýkur áður en úrslit hefjast. Þá geta dómarar ekki átt von á áreiti í sínum frí- eða vinnutíma þegar þeir hafa lokið dómstörfum. Með því móti verða líka þeir sem áhuga hafa á því að spyrja dómara spurninga öruggari með hvenær það á að fara fram og boðleiðirnar verða eðlilegri og samtalið þ.a.l. líka.

Það er allavega alveg ljóst að ef við ræðum þessi mál ekki og hvað okkur þykir eðlilegt verða engar framfarir.

Hvað finnst þér?

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link