Meistaradeild Ungmenna og Top Reiter 2023 Lið Top Reiter vann liðakeppnina

  • 7. maí 2021
  • Fréttir

Nú er Meistaradeild Ungmenna lokið. Deildin hefur gengið sérstaklega vel í ár þrátt fyrir auka áskorun vegna covid veirunnar. Knapar stóðu sig virkilega vel og ljóst er að framtíð hestamennskunnar er björt.

Sigurlið deildarinnar var lið Top Reiter, í því liði voru Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir, Hafþór Hreiðar Birgisson, Sigrún Högna Tómasdóttir og Thelma Dögg Tómasdóttir

Liðakeppni eftir sex keppnisgreinar

Top Reiter – 184

Pálmatré – 138

Icehest – 120

Ká – Raf ehf – 83

Vallarbraut ehf –  60

 

Við viljum þakka öllum sjálfboðaliðum sem komu að deildinni í ár kærlega fyrir hjálpina. Einnig viljum við þakka Dýralæknum í Sandhólaferju fyrir að styrkja og ásamt þeim þökkum við öllum öðrum sem hafa styrkt deildina sem eru eftirfarandi:

 

Dýralæknar Sandhólaferju

Fóðurblandan

Gangmyllan

Stúdíó S – hárstofa Selfossi

Hestvit

Fákafár

Bílaverkstæði Högna

Karl Úrsmiður

Brekka

Baldvin og Þorvaldur

Trekó Verktakar

Múrx

Pitstop

Vesturkot

Margrétarhof

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link