Fjórðungsmót og Landssýning í Borgarnesi – stefnir í veislu!
Arna frá Skipaskaga stóð efst í B-flokki gæðinga á FM2017. Knapi Sigurður Sigurðarson. mynd: Eiðfaxi
Fjórðungsmót Vesturlands og Landssýning kynbótahrossa verður haldin dagana 7.-11. júlí í Borgarnesi. Síðast var Fjórðungsmót haldið í Borgarnesi og þótti það takast vel líkt og þær myndir Eiðfaxa sem fylgja fréttinni hér fyrir neðan gefa til kynna.
Þátttökurétt í gæðingakeppni eiga knapar og hestaeigendur af Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Á Landssýningu eiga hross af öllu landinu þátttökurétt.
Auk þess verður boðið upp á opnar keppnir í tölti og skeiði fyrir knapa af öllu landinu.
Það stefnir í að Fjórðungsmót Vesturlands verði einn mest sótti hestamanna viðburður sumarsins. Landbúnaðarsýning & sveitamarkaður verður haldinn í Reiðhöllinni samhliða mótinu þar sem fyrirtækjum og öðrum framleiðendum úr héraði gefst kostur að kynna vörur sínar.
Fylgjast má með undirbúningi á facebook síðu mótsins og á viðburði sem stofnaður hefur verið á þeim vettvangi.
Gerið góð kaup og tryggið ykkur miða í forsölu á tix.is Frítt fyrir 13 ára og yngri

Trymbill frá Stóra-Ási varð efstur A-flokks gæðinga. Knapi Mette Mannseth. Mynd:Eiðfaxi

Góð stemning var í brekkunni eins og iðulega þegar hestamenn koma saman. mynd: Eiðfaxi

Sól og hiti einkenndu mótið árið 2017. Mynd: Eiðfaxi

Fjöldi frábærra kynbótahrossa kom fram árið 2017, búast má við öðru eins í ár. Á myndinni eru Goði frá Bjarnarhöfn og Hans Þór Hilmarsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH