Blær frá Leirlulæk hæst dæmda hrossið í Verden

Blær frá Leirulæk og Þórður Þorgeirsson. Mynd: Krijn Buijtelaar
Kynbótasýningar eru nú hafnar í Evrópu og allt að fara á fullt í þeim málum í hinum ýmsu löndum. Nú þegar hafa þrjár kynbótasýningar verið haldnar í Þýskalandi. Eiðfaxi fjallaði í síðustu viku eina þeirra sem fram fór á Kronshof, en lesa má um hana hér.
Dagana 11.-13.maí fór svo fram sýningin FIZO Verden þar sem sýnd voru 63 hross í fullnaðardómi.
Hæst dæmdi stóðhestur sýningarinnar var 6.vetra gamall stóðhestur, Blær frá Leirulæk, sem hlaut fyrir sköpulag 8,48, fyrir hæfileika 8,49 og í aðaleinkunn 8,49. Hlaut hann 9,0 fyrir skeið og samstarfsvilja, hófa og prúðleika. Ræktandi hans er Sigurbjörn Jóhann Garðarsson en eigendur Johannes Pantelmann og Volker Sill. Blær er undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Þórdísi frá Leirulæk. Knapi á honum var Þórður Þorgeirsson.
Hér fyrir neðan er myndband af Blæ á Skeiði sem Krijn Buijtelaar tók.
Af öðrum áhugaverðum hrossum sem komu þar fram má nefna stóðhestinn Sjafnar frá Syðra-Kolugili sem er ræktaður af Malin Maria Persson en í eigu Stefáns Jóhanns Grétarssonar. Hlaut hann 8,40 í aðaleinkunn þar af 9,0 fyrir skeið og samstarfsvilja. Þá var Mæra vom Kronshof hæst dæmda hryssa sýningarinnar með 8,37 í aðaleinkunn og þar af m.a. 9,0 fyrir tölt og hægt tölt.
Öll sýnd hross í Verden raðað eftir aðaleinkunn.