Árni Björn og Flaumur undirstrika yfirburði í fjórgangi
Keppni í fjórgangi meistara fór fram í dag á íslandsmótinu í Víðidal. Margir knapar náðu að laða fram góðar sýningar, þrátt fyrir að í morgun hafi gengið á með skúrum, og sumir keppendur þurftu að sætta sig við mígandi rigningu, ef svo má að orði komast.
Árni Björn og Flaumur eru orðnir vel kunnugir því að sitja í efsta sæti að lokinni forkeppni og má ætla að, ef allt gengur upp hjá þeim í úrslitum, hampi þeir íslandsmeistaratitli í fjórgangi um helgina. Einkunn Árna í forkeppni er 8,03, sú sama og þeir hlutu á Reykjavíkurmeistara móti hér fyrr í sumar.
Í öðru sæti er Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Óskari frá Breiðstöðum en einkunn þeirra er 7,63 í þriðja sætinu er Siguroddur Pétursson á Stegg frá Hrísdal með 7,60 í einkunn. Jöfn í 4-5 sæti eru þau Elín Holst og Ásmundur Ernir með 7,57 í einkunn.
Með þessari forkeppni í fjórgangi meistara er ljóst að mikil breidd er í fjórgangshestum nú orðið og þeir síst á undanhaldi, eins og stundum hefur verið haldið fram.
Fjórgangur V1
Opinn flokkur – Meistaraflokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Árni Björn Pálsson Flaumur frá Sólvangi 8,03
2 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum 7,63
3 Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal 7,60
4-5 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum 7,57
4-5 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði 7,57
6 Jakob Svavar Sigurðsson Hálfmáni frá Steinsholti 7,53
7-8 Ragnhildur Haraldsdóttir Vákur frá Vatnsenda 7,43
7-8 Þórarinn Ragnarsson Leikur frá Vesturkoti 7,43
9-10 John Sigurjónsson Æska frá Akureyri 7,30
9-10 Matthías Leó Matthíasson Taktur frá Vakurstöðum 7,30
11 Mette Mannseth Skálmöld frá Þúfum 7,27
12 Ásmundur Ernir Snorrason Dökkvi frá Strandarhöfði 7,23
13 Lea Schell Eldey frá Þjórsárbakka 7,13
14 Hanna Rún Ingibergsdóttir Mörður frá Kirkjubæ 7,10
15-17 Hanna Rún Ingibergsdóttir Grímur frá Skógarási 7,07
15-17 Guðmundur Björgvinsson Sölvi frá Auðsholtshjáleigu 7,07
15-17 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Kolbakur frá Morastöðum 7,07
18 Ævar Örn Guðjónsson Vökull frá Efri-Brú 7,00
19 Bergrún Ingólfsdóttir Þórbjörn frá Tvennu 6,97
20 Edda Rún Guðmundsdóttir Spyrna frá Strandarhöfði 6,90
21-23 Hanne Oustad Smidesang Roði frá Hala 6,87
21-23 Rósa Birna Þorvaldsdóttir Frár frá Sandhól 6,87
21-23 Fredrica Fagerlund Stormur frá Yztafelli 6,87
24-26 Bergur Jónsson Álfgrímur frá Syðri-Gegnishólum 6,83
24-26 Lena Zielinski Líney frá Þjóðólfshaga 1 6,83
24-26 Sólon Morthens Fjalar frá Efri-Brú 6,83
27 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Sproti frá Enni 6,80
28-29 Hlynur Pálsson Tenór frá Litlu-Sandvík 6,77
28-29 Valdís Ýr Ólafsdóttir Þjóstur frá Hesti 6,77
30-31 Máni Hilmarsson Lísbet frá Borgarnesi 6,70
30-31 Súsanna Sand Ólafsdóttir Bikar frá Ólafshaga 6,70
32 Stella Sólveig Pálmarsdóttir Pétur Gautur frá Strandarhöfði 6,67
33 Birgitta Bjarnadóttir Sveinsson frá Skíðbakka 1A 6,63
34 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Fengur frá Auðsholtshjáleigu 6,60
35-37 Hjörvar Ágústsson Farsæll frá Hafnarfirði 6,57
35-37 Annie Ivarsdottir Rökkvi frá Hólaborg 6,57
35-37 Gústaf Ásgeir Hinriksson Kría frá Kópavogi 6,57
38 Bergrún Ingólfsdóttir Bikar frá Feti 6,47
39 Brynja Amble Gísladóttir Goði frá Ketilsstöðum 6,40
40 Bylgja Gauksdóttir Vakning frá Feti 6,30
41 Kathrine Vittrup Andersen Augsýn frá Lundum II 6,27
42 Adolf Snæbjörnsson Auður frá Aðalbóli 1 6,17
43 Eveliina Aurora Ala-seppaelae Strákur frá Lágafelli 5,77
44-47 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ 0,00
44-47 Hulda Gústafsdóttir Sesar frá Lönguskák 0,00
44-47 Jóhann Magnússon Glaumur frá Bessastöðum 0,00
44-47 Svanhvít Kristjánsdóttir Vorsól frá Grjóteyri 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH