WR mót Sleipnis og Skeiðleikar

  • 19. maí 2021
  • Fréttir

Hið árlega og stórglæsilega íþróttamót Sleipnis fer fram dagana 26.-30.maí á Brávöllum á Selfossi. Mótið hefst á miðvikudagskvöldi á Skeiðleikum Baldvins og Þorvaldar.

Um opið mót er að ræða en þó með þeim takmörkunum að hámarksfjöldi keppenda er í hverja grein og má glöggva sig betur á hvaða greinar eru í boði og hversu mikill fjöldi er í þær hér fyrir neðan. Áætlað er að um world ranking mót sé að ræða og er unnið að því nú að fá öll tilskilin leyfi fyrir því.

Skráning er nú opin á Sportfeng en henni lýkur mánudagskvöldið 24.maí. Skráningargjöld í hverja grein eru hér fyrir neðan. Þeir sem millifæra eiga að senda póst á [email protected] þar sem staðfest er að greiðsla hafi átt sér stað, öðruvísi telst skráning ekki gild. Nefndin áskilur sér rétt til þess að fella niður flokka náist ekki nægileg þátttaka í þá.

Sjáumst á Selfossi!

 

Keppnisgr. Flokkur Hámarksfj. Gjald
T1 Opinn flokkur – Meistaraflokkur 30 7.000
T1 Ungmennaflokkur 15 7.000
T2 Opinn flokkur – Meistaraflokkur 15 7.000
T2 Ungmennaflokkur 10 7.000
T3 Opinn flokkur – 1. flokkur 30 7.000
T3 Opinn flokkur – 2. flokkur 10 7.000
T3 Unglingaflokkur 15 5.000
T3 Barnaflokkur 15 5.000
T4 Opinn flokkur – 1. flokkur 10 7.000
T4 Unglingaflokkur 10 5.000
T7 Opinn flokkur – 2. flokkur 10 7.000
T7 Barnaflokkur 10 5.000
V1 Opinn flokkur – Meistaraflokkur 30 7.000
V1 Ungmennaflokkur 15 7.000
V2 Opinn flokkur – 1. flokkur 30 7.000
V2 Opinn flokkur – 2. flokkur 10 7.000
V2 Unglingaflokkur 15 5.000
V2 Barnaflokkur 15 5.000
F1 Opinn flokkur – Meistaraflokkur 30 7.000
F1 Ungmennaflokkur 15 7.000
F2 Opinn flokkur – 1. flokkur 20 7.000
F2 Unglingaflokkur 15 5.000
Skeið 250m Opinn flokkur – 1. flokkur 99 3.000
Skeið 150m Opinn flokkur – 1. flokkur 99 3.000
Gæðingaskeið Opinn flokkur – Meistaraflokkur 15 5.000
Gæðingaskeið Ungmennaflokkur 10 7.000
Flugskeið 100m Opinn flokkur – 1. flokkur 99 3.000
V5 Barnaflokkur 10 5.000

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link