Pálmi í Nettó í Hestablaðinu
Pálmi Guðmundsson, kaupfélagsstjóri í KASK og verslunarstjóri Nettó á Hornafirði, er einn öflugasti hestamaðurinn í Hornafirði um þessar mundir. Óhætt er að segja að hann sé með ólæknandi hrossasótt. Hann var á sínum tíma knapi á stökkhestum hjá Einari Karelssyni í Borgarnesi og Idolið hans Hinriks Bragasonar. Nú hefur áhuginn færst af miklum þunga yfir á hrossaræktina, þótt kappinn sé mjög duglegur að ríða út og keppa. Hefur hann skákað mörgum sér yngri knöpum á keppnisvellinum eystra á undanförnum árum. Lesið viðtal við Pálma í Hestablaðinu, sem kemur út á fimmtudaginn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH