Áhugamannamót Íslands 2021 – ný staðsetning

  • 21. maí 2021
  • Fréttir

 

Hestamannafélagið Geysir og Hestamannafélagið Dreyri hafa gert með sér samkomulag um að Dreyri muni halda Áhugamannamót Íslands 2021 á sínu félagssvæði við Akranes.
Mótið mun fara fram 23-25.júlí 2021.
Keppt er í eftirfarandi greinum T3, T4, V2, F2, T7 og V5. Einnig í gæðingaskeiði og 100m skeiði.
Allir þeir knapar sem hafa náð 22 ára aldri (á árinu) og eldri og hafa EKKI keppt í meistaraflokki á síðastliðnum 2 árum hafa þátttökurétt á mótinu.
Gaman verður að fylgjast með þessu stærsta móti í hestaíþróttum á hverju sumri, eingöngu ætlað áhugamönnum fara fram á nýjum stað.
Óskum við Dreyramönnum alls hins besta og við vitum að þeir munu framkvæma glæsilegt Áhugamannamót Íslands 2021 á sínu félgassvæði núna í sumar.
Mótsstjórn Geysis og Dreyra

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link