Frábær árangur knapa á Hólamóti

  • 23. maí 2021
  • Fréttir

Mette og Vívaldi í keppni í Meistaradeild KS en þau hlutu frábæra einkunn í gæðingaskeiði um helgina

Hólamótinu – íþróttamóti UMSS og Skagfirðings er nú lokið en óhætt er að segja að einkunnir og árangur knapa bæði í hringvallar-og skeiðgreinum hafi verið frábær.

Mette Mannseth vann sigur í þremur greinum í Meistaraflokki. Í fjórgangi á Skálmöld frá Þúfum með 7,60 í einkunn, slaktaumatölt á Blundi frá Þúfum með 7,92 í einkunn og í gæðingaskeiði náði hún í fágæta einkunn á Vívaldi frá Torfunesi, 8,42.

Þórarinn Eymundsson var efstur í fimmgangi meistara  á Vegi frá Kagaðarhóli með 7,68 í einkunn og Magnús Bragi Magnússon og Óskadís frá Steinnesi unni keppni í tölti meistara með einkunnina 8,22.

Í skeiðgreinum náðust góðir tímar og heldur Jóhann Magnússon á Fröken frá Bessastöðum áfram að fara með sigur úr býtum, líkt og í Meistaradeild KS um daginn. Í þetta skiptið fór hann 100 metrana á 7,62 sekúndum. Í 250 metra skeiði var það Konráð Valur á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu sem var fljótastur á tímanum 22,36. Þórarinn Eymundsson og Gullbrá frá Lóni voru svo fljótust í 150 metra skeiði á tímanum 14,74 sekúndum.

Auk áðurnefndra sigra náðu margir aðrir knapar góðum árangri en heildarniðurstöður mótsins má lesa hér fyrir neðan.

Heildarniðurstaða frá Hólamóti

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link