„Skytturnar þrjár“
Tígull fra Kleiva hefur hlotið 10 fyrir hægt tölt og hægt stökk.
Þrjú hross hafa hlotið 10 fyrir fleiri en tvö eiginleika í sama kynbótadómi. En það eru þau Tígull fra Kleiva, Díva frá Álfhólum og Spuni frá Vesturkoti. Tígull frá Kleiva hlaut 10 fyrir hægt tölt og hægt stökk. Díva hlaut 10 fyrir tölt og vilja og geðlags og Spuni hlaut 10 fyrir skeið og vilja og geðslag.
Tígull hlaut þessar 10 árið 2011 en hann var sýndur af Jóhanni R. Skúlasyni. Tígull fór þá í 8.39 í aðaleinkunn en það er þó ekki hans hæsti dómur en sama ár hlaut hann 8.44 í aðaleinkunn sem er hans hæsti dómur.
Díva hlaut þessar 10 árið 2011 á héraðssýningu á Gaddstaðaflötum. Það var Sara Ástþórsdóttir sem sýndi hana. Hún hlaut þá 8.33 í aðaleinkunn og er það hennar hæsti dómur. 8.54 fyrir hæfileika og 8.02 fyrir sköpulag.
Spuni frá Vesturkoti fékk sínar 10 á Landsmóti 2011 í Skagafirði en það var Þórður Þorgeirsson sem sýndi hann. Spuni hlaut í aðaleinkunn 8.92 – 9.25 fyrir hæfileika og 8.42 fyrir sköpulag.
Díva frá Álfhólum og Sara Ástþórsdóttir
Spuni frá Vesturkoti og Þórður Þorgeirsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH