Ætlar þú í Háskólanám á Hólum?
Háskólinn á Hólum hefur fest sig í sessi sem miðstöð reiðkennslu og reiðmennsku á íslenska hestinum. Fjöldi reiðkennara og knapa hafa útskrifast frá skólanum á síðustu áratugum og flest þeirra standa í fremstu röð á hinum ýmsu sviðum í faginu. Hér fyrir ofan má horfa á kynningarmyndband á námi við Hestafræðideild.
Eins og segir á vef Hólaskóla:
Markmið Hestafræðideildar er að veita fagmenntun á sviði reiðmennsku, reiðkennslu, tamninga, og hestahalds og að vinna að þróun og nýsköpun þekkingar, á öllum sviðum er varða hestinn, með rannsóknum. Með þessum hætti verði stuðlað að aukinni arðsemi í atvinnugreininni, útbreiðslu hestamennskunnar og velferð hestanna. Deildin er opinber miðstöð menntunar og rannsókna á sviði hestamennsku, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu á Íslandi. Deildin þjónar Íslandshestamennskunni um allan heim og nemendahópurinn er alþjóðlegur.
Námið í Hestafræðideild er fjölbreytt að viðfangi og aðferðum þar sem bókleg og verkleg kennsla er samþætt, kennslan byggist á fyrirlestrum og lestri fagefnis. Í náminu er lögð mikil áhersla á verklega þjálfun í formi einkakennslu, hópkennslu og sýnikennslu. Samhliða námsleiðinni BS í reiðmennsku og reiðkennslu er boðið upp á þá möguleika að útskrifast með diplómu að loknu einu námsári (leiðbeinendapróf) eða tveimur (tamningapróf). Jafnframt er boðið uppá meistaranám í hestafræðum við deildina þar sem áherslan er á rannsóknarnám með sterkan fræðilegan bakgrunn.
Umsókn um nám lýkur 5.júní en sækja má um með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH