Rafræn stóðhestabók

  • 4. júní 2021
  • Fréttir

Stóðhestabók Eiðfaxa kom út í byrjun maí og er nú til á heimilum og í hesthúsum þúsunda hestamanna vítt um landið. Eiðfaxi ætlar þó ekki að láta þar við sitja heldur ætlum við að gefa stóðhestabókina út rafrænt á vefnum svo allir geti verið fljótir að fletta upp á stóðhestum í gegnum síma sína og tölvur.

Í rafrænu stóðhestabókinni verður hægt að skoða myndbönd af hestum og hvetjum við þá eigendur stóðhesta sem vilja nýta sér það og hafa ekki nú þegar sent inn myndbönd að senda á [email protected] fyrir sunnudaginn 6.júní.

Rafræna stóðhestabókin verður svo aðgengileg á vef Eiðfaxa öllum hestamönnum til gagns og gamans.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link