Gæðingamót Geysis 12-13.júní

  • 5. júní 2021
  • Fréttir

Fróði frá Staðartungu keppti fyrir hönd Geysis á LM2012 og stóð efstur í A-flokki gæðinga

Opið Gæðingamót Geysis verður haldið 12-13.júní á Rangárbökkum við Hellu. Nú er um að gera að skrá sig og taka eina lauflétta æfingu fyrir LM2022 en það fer fram á Rangárbökkum við Hellu á næsta ári.
Skráningargjald er 5000 kr í ungmennaflokk og fullorðinsflokka.
Frítt er fyrir polla, börn og unglinga.
Skeiðgreinar 4000 kr.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum(skráning í sportfeng)
A- og B-flokki (gæðingaflokkur 1)
A- og B-flokki áhugamanna (gæðingaflokkur 2)
A- og B-flokki ungmenna
Unglingaflokki
Barnaflokki
Pollaflokkur
Gæðingatölt(fullorðins) opinn flokkur 18 ára og eldri (gæðingaflokkur 1)
Gæðingatölt(fullorðins) áhugamanna 18 ára og eldri (gæðingaflokkur 2)
Gæðingatölt(unglinga) 17 ára og yngri
250m skeið
150m skeið
100m skeið
Skráning er hafin og fer fram á sportfengur.com
Skráningu lýkur mánudagskvöldið 7.júní.
Ef vandamál komu upp við skráningu er hægt að hafa samband í síma 8637130
Allar afskráningar fara fram í gegnum síma 8637130.
Mótanefndin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link