Rauðskeggur frá Kjarnholtum I til notkunar á Feti
Rauðskeggur mætir í hólf mánudaginn 14 júní á hrossaræktarbúinu Feti, pantanir berist í síma 8470810. Þeir sem hafa nú þegar pantað geta komið með hryssur helgina 12-13. júní.
Verð er 160.000 með öllu og einum sónar.
Rauskeggur er undan Kiljani frá Steinnesi og Heru frá Kjarnholtum 1. Hann hefur hlotið 8,76 fyrir sköpulag, 8,92 fyrir hæfileika í aðaleinkunn 8,87. Fyrir eiginleikana skeið og samstarfsvilja hlaut hann 9,5 en 9,0 fyrir Háls,herðar og bóga, bak og lend, samræmi,hófa, tölt, greitt stökk, fegurð í reið og hægt tölt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH