Vökull frá Efri-Brú stóð efstur í B-flokki gæðinga með 9.14 í einkunn.
Sameiginleg gæðingakeppni Fáks og Spretts fór fram á mótssvæði Spretts um helgina. Margir frábærir gæðingar voru skráðir til leiks í öllum flokkum.
Í A-flokki gæðinga varð Árni Björn Pálsson efstur á Jökli frá Breiðholti í Flóa en hann hlaut í aðaleinkunn 8.78. Efstur í B-flokki varð Ævar Örn Guðjónsson og Vökull frá Efri-Brú en þeir hlutu í úrslitum 9.14 í aðaleinkunn.
Jökull frá Breiðholti í Flóa stóð efstur í A-flokki
Gregersen styttan er veitt árlega á gæðingamóti Fáks og er handhafi hennar valinn á þann hátt að hann þyki sýna fágaða og íþróttamannslega framkomu, áberandi vel hirt hross og síðast en ekki síst, sé í Fáksbúningi í keppninni. Að þessu sinni hlaut styttuna Hrafnhildur Jónsdóttir og óskum við henni til hamingju.
Veitt eru verðlaun í minningu Jónínu í Topphestum árlega á Gæðingamóti Spretts, þau verðlaun eru veitt knapa í yngri flokkum sem mætir til keppni á vel hirtum hesti og sýnir góða reiðmennsku. Þessi verðlaun voru veitt í fjórða skiptið í ár og að þessu sinni hlaut Kristín Elka Svansdóttir Jónínu styttuna, en keppti hún í barnaflokki á hestinum Loka frá Syðra-Velli. Þar að auki var Svansstyttan veitt, en hún er veitt þeim knapa sem klæðist félagsbúning og þykir ávallt til fyrirmyndar hvað varðar prúðmannlega reiðmennsku, klæðaburð og hirðingu hests, utan vallar sem innan. Að þessu sinn hlaut Rúnar Freyr Rúnarsson styttuna.