Árni hafði sigur
Í kvöld fór fram feyknasterk fimmgangskeppni Meistaradeildar í Reiðhöllinni í Spretti. Aðstaða til fimmgangskeppni og fyrir áhorfendur er til fyrirmyndar en þetta er í fyrsta sinn sem keppnin fer fram annar staðar en á Ingólfshvoli.
Svo fór að Árni Björn vann keppni kvöldsins eftir að hafa komið þriðji inn. Daníel Jónsson og Þór frá Votumýri 2 komu efstir inn í úrslitin, en urðu að láta sér annað sætið að góðu. Þriðja varð Hulda Gústafsdóttir á Birki frá Vatni og sýndu þau enn og aftur að þau eru í hópi allra sterkustu para í þessari grein.
Úrslitin urðu sem hér segir:
1. Árni Björn Pálsson Oddur frá Breiðholti 7.26
2. Daníel Jónsson Þór frá Votumýri 7.21
3. Hulda Gústafsdóttir Birkir frá Vatni 7.10
4. Ísólfur Líndal Þórisson Sólbjartur frá Flekkudal 7.00
5. Sigurður Vignir Matthíasson, Gormur frá Efri-Þverá 6.64
6. Hinrik Bragason, Hervar frá Hamarsey 6.62
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH