Glæsihross í Hafnarfirði

  • 11. júní 2021
  • Fréttir

Pensill hlaut 8,98 fyrir sköpulag hann verður til notkunar í Holtsmúla í sumar

Fyrri vikunni af kynbótasýningum á Sörlastöðum í Hafnarfirði lauk í dag á yfirlitssýningu. Líkt og á öðrum sýningum kom fjöldi glæsilegra gripa fram. Dómarar voru Víkingur Gunnarsson, Elisabet Jansen og Friðrik Már Sigurðsson.

Af þeim 95 sem komu fram í fullnaðardómi hlaut rétt rúmlega helmingur 1.verðlaun eða alls 50 hross. Til viðbótar við þau 95 sem sýnd voru í reið voru 16 hross sköpulagsdæmd.

Hæst dæmda hross sýningarinnar er Glampi frá Kjarrhólum 9.vetra gamall stóðhestur undan  Arion frá Eystra-Fróðholti og Gígju frá Árbæ. Ræktendur hans eru þeir Bragi Sverrisson og Axel Davíðsson en eigandi eru Gæðingar ehf, sýnandi Glampa var Daníel Jónsson. Glampi hlaut 8,59 fyrir sköpulag, 8,72 fyrir hæfieika og í aðaleinkunn 8,68. Þar af 9,5 fyrir hægt tölt.

Mikla athygli vakti 4.vetra stóðhesturinn Fróði frá Flugumýri sem er sá hæsti dæmdi í sínum aldursflokki í ár. Fróði er undan Hring frá Gunnarsstöðum og Fýsn frá Feti. Ræktendur eru Teitur Árnason og Eyrún Ýr Pálsdóttir en Eyrún er eigandi og knapi. Fróði er klárhestur með 8,45 fyrir sköpulag, 8,31 fyrir hæfileika og 8,36 í aðaleinkunn. Hæfileika einkunn án skeiðs er 8,91.

Fróði frá Flugumýri

Kastor frá Garðshorni á Þelamörk kom til dóms í Hafnarfiði og hlaut m.a. einkunnina 10,0 fyrir skeið en þá einkunn hafði hann hlotið í síðustu viku á Hólum. Hann hækkaði nú einkunn sýna fyrir hæfileika þó nokkuð og er nú með 8,48 í aðaleinkunn.

Pensill frá Hvolsvelli hlaut háan dóm með hvorki meira en minna en 8,98 fyrir sköpulag og þar af einkunnina 9,5 fyrir bak og lend og samræmi og 10 fyrir prúðleika. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,32 og í aðaleinkunn 8,55.

Þau hross sem hlutu einkunnina 9,5 eða 10 fyrir einstaka eiginleika á þessari sýningu að undanskildum þeim sem áður hefur verið fjallað um eru eftirtalin:

Hávaði frá Haukholtum hlaut 9,5 fyrir samræmi.

Sjarmi frá Sauðanesi hlaut 9,5 fyrir prúðleika

Kasmír frá Ölduhofi hlaut 9,5 fyrir prúðleika

Heiður frá Eystra-Fróðholti hlaut 9,5 fyrir tölt og samstarfsvilja.

Fjóla frá Eskiholti II hlaut 9,5 fyrir skeið.

 

 

Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi Þjálfari
IS2012101256 Glampi frá Kjarrhólum 8.59 8.72 8.68 Daníel Jónsson
IS2015184975 Pensill frá Hvolsvelli 8.98 8.32 8.55 Elvar Þormarsson
IS2015188159 Hávaði frá Haukholtum 8.8 8.33 8.5 Daníel Jónsson
IS2014164066 Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 8.22 8.62 8.48 Konráð Valur Sveinsson
IS2013225112 Hófsóley frá Dallandi 8.44 8.48 8.47 Sigurður Rúnar Pálsson
IS2015235519 Andrá frá Nýjabæ 8.24 8.47 8.39 Flosi Ólafsson
IS2012236578 Fjóla frá Eskiholti II 8.13 8.52 8.38 Valdís Björk Guðmundsdóttir Valdís Björk Guðmundsdóttir
IS2015258841 Snilld frá Miðsitju 7.94 8.61 8.37 Brynja Kristinsdóttir Brynja Kristinsdóttir
IS2015186182 Kraftur frá Eystra-Fróðholti 8.39 8.35 8.36 Daníel Jónsson
IS2017158627 Fróði frá Flugumýri 8.45 8.31 8.36 Eyrún Ýr Pálsdóttir
IS2013237787 Spyrna frá Borgarholti 8.05 8.48 8.33 Viðar Ingólfsson Viðar Ingólfsson
IS2013255011 Glíma frá Gröf 8.29 8.35 8.33 Flosi Ólafsson
IS2016187433 Goði frá Oddgeirshólum 4 8.3 8.32 8.32 Eyrún Ýr Pálsdóttir
IS2016286644 List frá Efsta-Seli 8.3 8.3 8.3 Daníel Jónsson Daníel Jónsson
IS2014186187 Heiður frá Eystra-Fróðholti 8.65 8.11 8.3 Teitur Árnason
IS2015125109 Konfúsíus frá Dallandi 8.36 8.24 8.28 Halldór Guðjónsson
IS2015201217 Fura frá Hólateigi 8.26 8.26 8.26 Elvar Þormarsson
IS2015288472 Sunna frá Fellskoti 8.2 8.28 8.26 Teitur Árnason
IS2015158542 Þróttur frá Syðri-Hofdölum 8.59 8.07 8.25 Flosi Ólafsson Ástríður Magnúsdóttir
IS2015280693 Melódía frá Hrístjörn 8.19 8.26 8.24 Ævar Örn Guðjónsson
IS2015286645 Lóa frá Efsta-Seli 8.41 8.12 8.23 Daníel Jónsson Daníel Jónsson
IS2015284980 Sara frá Vindási 8.19 8.22 8.21 Daníel Jónsson Auður Stefánsdóttir
IS2015235900 Gletta frá Litla-Hvammi 8.01 8.3 8.2 Hlynur Guðmundsson Hlynur Guðmundsson
IS2015158465 Ljómi frá Narfastöðum 8.41 8.08 8.2 Teitur Árnason Bergur Gunnarsson
IS2016286657 Fiðla frá Flagbjarnarholti 8.44 8.06 8.2 Ævar Örn Guðjónsson Ævar Örn Guðjónsson
IS2015135891 Vakandi frá Sturlureykjum 2 8.37 8.1 8.2 Teitur Árnason Konráð Axel Gylfason
IS2015282365 Auðlind frá Þjórsárbakka 8.46 7.99 8.16 Lea Schell
IS2014287002 Suða frá Kjarri 8.12 8.17 8.15 Daníel Jónsson
IS2015286904 Bylgja frá Feti 8.33 8.04 8.14 Bylgja Gauksdóttir
IS2016186733 Skorri frá Vöðlum 8.37 8.02 8.14 Jóhann Kristinn Ragnarsson
IS2016265792 Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði 8.42 7.98 8.14 Ævar Örn Guðjónsson Ævar Örn Guðjónsson
IS2015135010 Mýrkjartan frá Akranesi 8.39 8 8.14 Hlynur Guðmundsson
IS2015249201 Elja frá Bjarnarnesi 8.32 8.03 8.13 Fanney Guðrún Valsdóttir
IS2013158627 Fjölnir frá Flugumýri II 8.01 8.18 8.13 Eyrún Ýr Pálsdóttir
IS2014286907 Dáð frá Feti 8.19 8.08 8.12 Bylgja Gauksdóttir
IS2014287945 Silfá frá Húsatóftum 2a 8.2 8.07 8.12 Lea Schell Lea Schell
IS2015184501 Elliði frá Skíðbakka III 8.32 7.99 8.11 Guðmundur Friðrik Björgvinsson
IS2017235726 Skjaldbreið frá Breiðabólsstað 8.03 8.15 8.11 Brynja Kristinsdóttir
IS2015187272 Blakkur frá Traðarholti 8.26 8 8.09 Flosi Ólafsson Rakel Katrín Sigurhansdóttir
IS2016135617 Þormar frá Neðri-Hrepp 8.15 8.06 8.09 Björn Haukur Einarsson
IS2015236520 Lind frá Svignaskarði 8.24 7.99 8.08 Valdís Björk Guðmundsdóttir Valdís Björk Guðmundsdóttir
IS2015287751 Kastanía frá Selfossi 8.11 8.05 8.08 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2015182466 Vonandi frá Halakoti 8.31 7.95 8.08 Teitur Árnason Svanhvít Kristjánsdóttir
IS2015286098 Lilja frá Hellu 8.14 8.03 8.07 Daníel Jónsson
IS2014201185 Veröld frá Dalsholti 8.14 8.02 8.06 Eyrún Ýr Pálsdóttir Eyrún Ýr Pálsdóttir
IS2017258440 Hringsjá frá Enni 8 8.08 8.05 Teitur Árnason
IS2015235848 Talía frá Skrúð 8.19 7.97 8.05 Flosi Ólafsson
IS2014276193 Draumadís frá Lundi 8.01 8.05 8.04 Jón Finnur Hansson
IS2016155174 Sigur frá Syðra-Kolugili 8.31 7.83 8 Leifur George Gunnarsson
IS2014280690 Styrjöld frá Hrístjörn 8.19 7.88 7.99 Sigurður Vignir Matthíasson Jóhann Axel Geirsson
IS2012284672 Verðandi frá Álfhólum 8.01 7.95 7.97 Ævar Örn Guðjónsson Birta Ólafsdóttir
IS2015236340 Frigg frá Kaðalsstöðum 1 7.92 7.97 7.95 Hlynur Guðmundsson Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir
IS2017258627 Kjarnorka frá Flugumýri 8.16 7.84 7.95 Eyrún Ýr Pálsdóttir
IS2011258560 Elíta frá Ásgarði vestri 7.7 8.08 7.95 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2015235846 Víóla frá Skrúð 8.07 7.88 7.95 Brynja Kristinsdóttir
IS2016157365 Glanni frá Varmalandi 8.51 7.63 7.94 Flosi Ólafsson Ástríður Magnúsdóttir
IS2015101130 Guðmundur Fróði frá Ólafsbergi 8.08 7.86 7.94 Teitur Árnason Teitur Árnason
IS2014286001 Sál frá Stóra-Hofi 8.35 7.72 7.94 Daníel Jónsson
IS2015281604 Karólína frá Pulu 8.02 7.87 7.92 Jóhann Kristinn Ragnarsson
IS2014267472 Urður frá Brekknakoti 8.21 7.76 7.92 Bjarni Sveinsson
IS2016183404 Bogi frá Brekku 8.21 7.75 7.91 Valdís Björk Guðmundsdóttir
IS2016286806 Venus frá Lækjarbotnum 8.46 7.62 7.91 Jóhann Kristinn Ragnarsson
IS2015158720 Hrafnaflóki frá Hjaltastöðum 8.56 7.52 7.89 Sigurður Vignir Matthíasson Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir
IS2013257364 Dama frá Varmalandi 8.25 7.68 7.88 Ástríður Magnúsdóttir
IS2017235617 Hrönn frá Neðri-Hrepp 7.94 7.83 7.87 Björn Haukur Einarsson
IS2016284890 Gáta frá Strandarhjáleigu 8.39 7.58 7.87 Elvar Þormarsson
IS2015201187 Jörð frá Dalsholti 7.98 7.8 7.86 Teitur Árnason Teitur Árnason
IS2017286733 Njóla frá Vöðlum 8.15 7.69 7.85 Jóhann Kristinn Ragnarsson
IS2017182466 Rúrik frá Halakoti 8.16 7.67 7.84 Teitur Árnason
IS2017184676 Hátindur frá Álfhólum 8.21 7.63 7.84 Flosi Ólafsson
IS2015287198 Ósk frá Þorlákshöfn 8.58 7.42 7.82 Jón Óskar Jóhannesson Carolin Annette Boese
IS2017184158 Skjóni frá Skálakoti 8.12 7.66 7.82 Hlynur Guðmundsson
IS2015186902 Háski frá Feti 8.16 7.62 7.81 Bylgja Gauksdóttir
IS2016188711 Toppur frá Miðengi 8.39 7.5 7.81 Viðar Ingólfsson
IS2017236554 Von frá Ferjukoti 8.07 7.67 7.81 Flosi Ólafsson
IS2015287013 Feykja frá Auðsholtshjáleigu 7.86 7.76 7.8 Dagbjört Skúladóttir
IS2016282646 Hátíð frá Þingási 7.97 7.7 7.8 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2016236671 Vanilla frá Borgarnesi 8.03 7.65 7.79 Björn Haukur Einarsson Hestakostur ehf
IS2015287008 Svana frá Kjarri 8.25 7.53 7.78 Daníel Jónsson
IS2015288501 Frú frá Torfastöðum 8.18 7.55 7.77 Finnur Jóhannesson
IS2015186850 Vængur frá Skammbeinsstöðum 1 7.64 7.84 7.77 Róbert Petersen
IS2014287005 Rauðka frá Kjarri 7.9 7.67 7.75 Daníel Jónsson
IS2016237858 Hetta frá Söðulsholti 8.38 7.38 7.73 Björn Haukur Einarsson
IS2015188710 Litríkur frá Miðengi 8.08 7.55 7.73 Viðar Ingólfsson Halldór Þorbjörnsson
IS2015283005 Freyja frá Hamarsheiði 2 8.08 7.5 7.7 Ævar Örn Guðjónsson
IS2008288049 Tíbrá frá Silfurmýri 7.58 7.76 7.7 Hinrik Þór Sigurðsson
IS2015236578 Kolskör frá Eskiholti II 7.89 7.57 7.68 Hlynur Guðmundsson Hlynur Guðmundsson
IS2010237858 Silja frá Söðulsholti 8.34 7.32 7.67 Björn Haukur Einarsson Björn Haukur Einarsson
IS2016186430 Ísúlfur frá Hákoti 8.11 7.4 7.65 Eyrún Ýr Pálsdóttir Eyrún Ýr Pálsdóttir
IS2015186180 Bláinn frá Eystra-Fróðholti 7.69 7.61 7.64 Flosi Ólafsson
IS2013282463 Sól frá Halakoti 8 7.16 7.46 Hanna Sofia Hallin Hanna Sofia Hallin
IS2011201659 Happadís frá Aðalbóli 1 7.84 7.22 7.44 Hinrik Þór Sigurðsson Hinrik Þór Sigurðsson
IS2016235850 Viska frá Skrúð 7.84 7.19 7.42 Björn Haukur Einarsson Hestakostur ehf
IS2015286512 Elba frá Áskoti 8.06 7.02 7.38 Finnur Jóhannesson
IS2013288049 Maístjarna frá Silfurmýri 7.78 7.02 7.29 Hinrik Þór Sigurðsson
IS2016182665 Bjarmi frá Eyði-Sandvík 8.15 Jón Finnur Hansson
IS2017288731 Brák frá Kringlu 2 8.09 Rósa Kristín Jóhannesdóttir
IS2015225110 Dyggð frá Dallandi 8.13 Sigurður Rúnar Pálsson
IS2017125110 Guttormur frá Dallandi 8.4 Halldór Guðjónsson
IS2016288669 Heimasæta frá Fossi 8.14 Matthías Sigurðsson
IS2013225274 Hvatning frá Lyngheiði 7.8 Sigurður Vignir Matthíasson Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir
IS2016101918 Kasmír frá Ölduhofi 7.95 Sigurður Vignir Matthíasson
IS2016235849 Kóróna frá Skrúð 8.4 Flosi Ólafsson
IS2017186587 Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 8.46 Ingunn Birna Ingólfsdóttir
IS2015167175 Sjarmi frá Sauðanesi 8.17 Björn Haukur Einarsson
IS2013258704 Skál frá Dýrfinnustöðum 7.8 Eyrún Ýr Pálsdóttir
IS2017125765 Skálmar frá Njarðvík 8.26 Hannes Brynjar Sigurgeirsson Hannes Brynjar Sigurgeirsson
IS2017157410 Spænir frá Reynistað 7.79 Hannes Brynjar Sigurgeirsson Hannes Brynjar Sigurgeirsson
IS2013225045 Sýr frá Flekkudal 8.45 Daníel Jónsson Valdimar Grímsson
IS2015281514 Von frá Sumarliðabæ 2 7.89 Ólafur Brynjar Ásgeirsson
IS2016135328 Þristur frá Akrakoti 8.56 Daníel Jónsson

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar