Búin að flækja reiðmennskuna um of

  • 26. mars 2013
  • Fréttir
Búin að flækja reiðmennskuna um of

Hrossaræktin skilar ekki nógu mörgum traustum og auðveldum tölturum. Þetta er skoðun þriggja þekktra hestamanna sem eru í viðtali í Hestablaðinu, sem kemur út á morgun, miðvikudaginn 25. mars.

Tamningameistararnir Benedikt Líndal og Sigurbjörn Bárðarson eru sammála um að búið sé að flækja reiðmennsku og reiðkennslu á íslenskum hestum of mikið. Tímabært sé að snúa til baka til einfaldsleikans.

Guðmundur Gíslason, matreiðslumaður og áhugamaður um útreiðar og hrossarækt, er sama sinnis. Það kosti mikla leit að finna trausta reiðhesta fyrir venjulegt útreiðafólk. Hann segir að helsti vandinn sé sá að eigendur stóðhesta hylmi yfir lundgalla í hestunum og hugsi meira um skjótfenginn gróða en ræktunina til framtíðar.

Hægt er að kaupa áskrift að Hestablaðinu og Eiðfaxa í síma 511-6611.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link