Frábæru Reykjavíkurmeistaramóti lauk í gær
Árni Björn og Hátíð frá Hemlu II á íþróttamóti á Selfossi
Reykjavíkurmeistaramót Fáks fór fram í síðustu viku. Fjöldi skráninga voru hátt í 900 og mæddi því mikið á sjálfboðaliðum og starfsfólki alla síðustu viku. Tímasetningar stóðust frábærlega og var mótið öllum sem að komu til mikils sóma. Íslandsmótið í hestaíþróttum er rétt handan við hornið og ljóst er að margir keppendur voru með það mót í huga því töluvert var um afskráningar í úrslit.
Helstu niðurstöður mótsins eru eftirfarandi.
Háar einkunnir í meistaraflokki
Í meistaraflokki var kepptt bæði í greinum með einn knapa inn á í einu og líka í léttari greinum líkt og T3 og V2. Í þeim greinum þar sem knapar riðu einir voru einkunnir gríðarlega háar í öllum keppnisgreinum.
- Árni Björn Pálsson með tvö efstu hross eftir forkeppni í tölti T1 þau Ljúf frá Torfunesi og Hátíð frá Hemlu II. Hann reið Hátíð til sigurs í úrslitum með töluverðum yfirburðum hlaut 9,28 í einkunn en svo há einkunn er fáséð.
- Í T2 var það Gústaf Ásgeir Hinriksson sem fór með sigur á Brynjari frá Bakkakoti með 8,42 í einkunn. Þeirra besti árangur í þessari grein og það glæsilegur.
- Í fjórgangi var kunnulegur kappi á toppnum, Jakob Svavar Sigurðsson á Hálfmána frá Steinsholti með 8,03 í úrslitum.
- Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri gerðu sér svo lítið fyrir og fóru með sigur í fimmgangi með einkunnina 7,81.
- Davíð Jónsson og Irpa frá Borgarnesi hlutu 8,38 í gæðingaskeiði og sigruðu þá grein.
- Samanlagður fjórgangssigurvegari var Jóhanna Margrét Snorradóttir á Bárði frá Melabergi
- Samanlagður fimmgangssigurvegari var Sigursteinn Sumarliðason á Stanley frá Hlemmiskeiði
Í skeiðgreinum var hart barist og margir knapar náðu frábærum tímum
- í 250 metra skeiði heldur einvígi þeirra Konráð Vals og Kjarks frá Árbæjarhjáleigu II og Sigursteins Sumarliðasonar og Krókusar frá Dalbæ áfram en sá fyrrnefndi var fljótari að þessu sinni á 21,87 sekúndum.
- Konráð Valur og Kjarkur voru einnig fljótastir í 100 metra skeiði á tímanum 7,42 sekúndum.
- Sigurður Vignir Matthíasson og Léttir frá Eiríksstöðum unnu 150 metra skeið á 14,51 sekúndu.
Ungmennaflokkur
- Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir stóð efst í T1 ungmenna á Skálmöld frá Eystra-Fróðholti með 7,56 í einkunn.
- Í slaktaumatölti var það Egill Már Þórsson á Hrygg frá Hryggstekk sem sigraði með 7,42 í einkunn. Glódís Rún Sigurðardóttir
- Kristófer Darri Sigurðsson og Ás frá Kirkjubæ unnu fimmgang með 6,93 í einkunn.
- Benedikt Ólafsson og Leira-Björk frá Naustum unnu keppni í gæðingaskeiði með 7,25 í einkunn
- Samanlagður fimmgangssigurvegari var Hákon Dan Ólafsson á Júlíu frá Syðri-Reykjum
- Samanlagður fjórgangssigurvegari var Glódís Rún Sigurðardóttir á Glymjanda frá Íbishóli.
Önnur úrslit
- Guðrún Sylvía Pétursdóttir stóð efst í T3 í 1.flokki á Gleði frá Steinnesi með 7,28 í einkunn.
- Sætaröðun þurfti til að skera úr um úrslit í T3 og T4 unglinga. Hulda María Sveinbjörnsdóttir stóð efst í T3 unglinga á Garpi frá Skúfslæk með 7,28 í einkunn. Védís Huld stóð efst í T4 á Hrafnfaxa frá Skeggsstöðum með 7,33 í einkunn.
- Védís Huld stóð einnig efst í fimmgangi unglinga á Eysteini frá Íbishóli með 6,86 í einkunn og í gæðingaskeiði á Hrafnhettu frá Hvannstóði.
- Hermann Arason stóð efstur í T4 1.flokki með 7,29 á Gusti frá Miðhúsum
- Elva Rún Jónsdóttir vann keppni barna í tölti á Straumi frá Hofsstöðum með 6,72 í einkunn en þau léku sama leik í fjórgangi barna þar Elva hlaut 6,83 í einkunn.
- Sanne Van Hezel og Völundur frá Skálakoti stóðu efst í fimmgangi 1.flokki með 6,74 í einkunn.
- Elín Árnadóttir og Blær frá Prestsbakka hlutu 7,17 í einkunn í fjórgangi 1.flokki og nældu sér í efsta sætið.
Hér í skjalinu fyrir neðan eru öll úrslit mótsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH