Hæst dæmdu hryssur vorsins
Katla er hæst dæmda hryssa vorsins með 8.77 í aðaleinkunn. Myndin er frá því á Landsmóti 2018, sýnandi í ár líkt og þá var Árni Björn Pálsson
Vorsýningum kynbótahrossa er nú lokið hér á landi en alls eru fullaðardómar vorsins 628 og hafa hross verið sýnd á átta mismunandi sýningum um landið nánar tilltekið á Hellu, Hólum, Hafnarfirði og Akureyri. Alls hafa 218 stóðhestar komið til fullnaðardóms, 405 hryssur og 5 geldingar. Þessu til viðbótar hafa 61 stóðhestur og 75 hryssur komið til sköpulagsdóms.
Tíu efstu hross vorsýninga hafa áunnið sér þátttökurétt á landssýningu sem fram fer í Borgarnesi og er þau að finna hér á listanum yfir hæst dæmdu hrossin.
Hæst dæmda fjögurra vetra hryssan er Afródíta frá Garðshorni á Þelamörk sem er undan Grími frá Garðshorni á Þelamörk og móðir er heiðursverðlaunahryssan Elding frá Lambanesi. Afródíta hlaut 8,43 fyrir sköpulag, 8,27 fyrir hæfileika og 8,33 í aðaleinkunn. Sýnandi hennar var Agnar Þór Magnússon, þjálfari Birna Tryggvadóttir Thorlacius og eru þau jafnframt ræktendur hryssunar. Afródíta kom fram á sýningu á Hólum sem haldin var 14.-18.júní.
Gleði frá Hólaborg er hæst dæmda fimm vetra hryssa vorsins ræktuð af Emiliu Staffansdotter og Ingimari Baldvinssyni en eigandi er Hólaborg ehf. Faðir hennar er Forseti frá Vorsabæ II og móðir er Hamingja frá Hæli. Gleði hlaut 8,45 fyrir sköpulag, 8,51 fyrir hæfileika og 8,49 í aðaleinkunn sýnandi hennar var Þorgeir Ólafsson. Gleði kom fram á Hellu á vorsýningu sem fór fram 7.-11.júní.
Hæst dæmda sex vetra hryssan að loknum vorsýningum er Frigg frá Hólshúsum. Hún er undna Kambi frá Akureyri og Finndísi Fjólu frá Meiri-Tungu 3. Ræktendur og eigendur eru Dagný Linda Kristjánsdóttir, Valur Ásmundsson og Kolbrún Kristjánsdóttir. Árni Björn Pálsson sýndi Frigg en þjálfari hennar er Kári Steinsson. Hún hlaut fyrir sköpulag 8,34, fyrir hæfileika 8,89 og í aðaleinkunn 8,70. Frigg kom fram á Gaddstaðaflötum vikuna 31.maí – 4.júní.
Í elska flokki hryssa er það Katla frá Hemlu II sem hæstan dóm hlaut sýnd af Árni Birni Pálssyni. Ræktendu eru Vignir Siggeirsson og Anna Kristín Geirsdóttir en eigandi er Anja Egger-Meier. Katla er undan Skýr frá Skálakoti og Spyrnu frá Síðu. Hún hlaut 8,56 fyrir sköpulag, 8,88 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,77 sýnd á Hellu þann 7.-11.júní.
Hér fyrir neðan má sjá 20 hæst dæmdu hryssur vorsins í hverjum flokki.
4 vetra hryssur
| Aðaleinkunn | Nafn | Uppruni í þgf. |
| 8.33 | Afródíta | Garðshorni á Þelamörk |
| 8.24 | Aðalheiður | Garðshorni á Þelamörk |
| 8.19 | Nala | Varmá |
| 8.15 | Rakel | Hólaborg |
| 8.11 | Skjaldbreið | Breiðabólsstað |
| 8.08 | Snælda | Syðra-Skörðugili |
| 8.05 | Hringsjá | Enni |
| 8.04 | Hrefna | Fákshólum |
| 8.01 | Hildur | Fákshólum |
| 8 | Nál | Lækjamóti II |
| 7.97 | Stöð | Bergi |
| 7.96 | Röst | Bergi |
| 7.96 | Steingerður | Horni I |
| 7.95 | Kjarnorka | Flugumýri |
| 7.95 | Urður | Gunnlaugsstöðum |
| 7.91 | Fjöður | Syðri-Gróf 1 |
| 7.9 | Stjarna | Hólaborg |
| 7.88 | Fjöður | Syðri-Gróf 1 |
| 7.88 | Hróðný | Akranesi |
| 7.87 | Díana | Lækjarbakka |
5 vetra hryssur
| Aðaleinkunn | Nafn | Uppruni í þgf. |
| 8.49 | Gleði | Hólaborg |
| 8.44 | Dögun | Stuðlum |
| 8.43 | Þenja | Prestsbæ |
| 8.38 | Staka | Hólum |
| 8.35 | Hrönn | Árbæjarhjáleigu II |
| 8.35 | Valdís | Auðsholtshjáleigu |
| 8.33 | Sigurdís | Skipaskaga |
| 8.33 | Dögun | Austurási |
| 8.31 | Grá | Hofi á Höfðaströnd |
| 8.3 | List | Efsta-Seli |
| 8.28 | Rómantík | Sauðanesi |
| 8.28 | Maístjarna | Naustum III |
| 8.24 | Einstök | Hvanneyri |
| 8.24 | Díva | Austurási |
| 8.21 | Gurra | Valhöll |
| 8.21 | Orka | Skógarnesi |
| 8.2 | Aría | Vindási |
| 8.2 | Einey | Hæli |
| 8.2 | Fiðla | Flagbjarnarholti |
| 8.19 | Ísey | Þjórsárbakka |
6 vetra hryssur
| Aðaleinkunn | Nafn | Uppruni í þgf. |
| 8.7 | Frigg | Hólshúsum |
| 8.64 | Kamma | Sauðárkróki |
| 8.62 | Álfamær | Prestsbæ |
| 8.6 | Bylgja | Bæ |
| 8.54 | Happadís | Strandarhöfði |
| 8.51 | Þyrnirós | Rauðalæk |
| 8.48 | Eind | Grafarkoti |
| 8.47 | För | Kýrholti |
| 8.46 | Örk | Eylandi |
| 8.45 | Anastasía | Svarfholti |
| 8.45 | Nína | Hrafnshóli |
| 8.44 | Heiður | Hofsstaðaseli |
| 8.39 | Andrá | Nýjabæ |
| 8.37 | Snilld | Miðsitju |
| 8.37 | Karen | Hríshóli 1 |
| 8.36 | Íshildur | Hólum |
| 8.36 | Hera | Ragnheiðarstöðum |
| 8.35 | Tromla | Skipaskaga |
| 8.31 | Lína | Efra-Hvoli |
| 8.3 | Silfurskotta | Sauðanesi |
7 vetra hryssur og eldri
| Aðaleinkunn | Nafn | Uppruni í þgf. |
| 8.77 | Katla | Hemlu II |
| 8.65 | Þrá | Prestsbæ |
| 8.54 | Hávör | Ragnheiðarstöðum |
| 8.5 | Gjöf | Hofi á Höfðaströnd |
| 8.47 | Hófsóley | Dallandi |
| 8.38 | Fjóla | Eskiholti II |
| 8.38 | Fríður | Ásbrú |
| 8.37 | Snerpa | Efri-Fitjum |
| 8.33 | Spyrna | Borgarholti |
| 8.33 | Glíma | Gröf |
| 8.31 | Hátíð | Reykjaflöt |
| 8.29 | Dögg | Sauðanesi |
| 8.27 | Hvelfing | Ásmundarstöðum 3 |
| 8.26 | Nótt | Lynghóli |
| 8.25 | Mirra | Stíghúsi |
| 8.21 | Sýr | Flekkudal |
| 8.19 | Kolka | Leirubakka |
| 8.17 | Drótt | Brautarholti |
| 8.16 | Krafla | Árbæjarhjáleigu II |
| 8.15 | Suða | Kjarri |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH