Frábærir stóðhestar komu til dóms á vorsýningum

  • 23. júní 2021
  • Fréttir

Seðill er hæst dæmdi sex vetra stóðhesturinn í vor ljósmynd/Maríanna Gunnarsdóttir.

Vorsýningum kynbótahrossa er nú lokið hér á landi en alls eru fullaðardómar vorsins 628 og hafa hross verið sýnd á átta mismunandi sýningum um landið nánar tilltekið á Hellu, Hólum, Hafnarfirði og Akureyri. Alls hafa 218 stóðhestar komið til fullnaðardóms, 405 hryssur og 5 geldingar. Þessu til viðbótar hafa 61 stóðhestur og 75 hryssur komið til sköpulagsdóms.

Tíu efstu hross vorsýninga hafa áunnið sér þátttökurétt á landssýningu sem fram fer í Borgarnesi og er þau að finna hér á listanum yfir hæst dæmdu hrossin.

Í flokki 4.vetra stóðhesta er það Fróði frá Flugumýri sem er með hæsta aðaleinkunn að vorsýningum loknum og það sem klárhestur. Fróði er undan Hring frá Gunnarsstöðum og Fýsn frá Feti. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,45, fyrir hæfileika 8,31 og í aðaleinkunn 8,36. Sýnandi Fróða var ræktandin eigandi hans Eyrún Ýr Pálsdóttir en hún er einnig ræktandi ásamt Teiti Árnasyni. Fróði var dæmdur á vorsýningum á Sörlastöðum í Hafnarfirði dagana 7. til 11.júní.

Magni frá Stuðlum er hæst dæmdi 5.vetra stóðhestur vorsins með 8,74 fyrir sköpulag, 8,40 fyrir hæfileika og 8,52 í aðaleinkunn. Ræktendur eru Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson sem jafnframt er eigandi ásamt Ólafi Tryggva Pálssyni og Hrafnkeli Áka Pálssyni. Faðir Magna er Konsert frá Hofi og móðir er Staka frá Stuðlum. Sýnandi hans var Árni Björn Pálsson á Gaddstaðaflötum dagana 31.maí til 4.júní.

Hæst dæmdur í flokki sex vetra hesta er Seðill frá Árbæ með 8,79 fyrir sköpulag, 8,62 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,68. Ræktandi og eigandi hans er Maríanna Gunnarsdóttir. Faðir Seðils er Sjóður frá Kirkjubæ og móðir Verona frá Árbæ. Sýnandi hans var Árni Björn Pálsson og kom hann fram á Hellu vikuna 7.-11.júní.

Í flokki sjö vetra stóðhesta og eldri er það Glampi frá Kjarrhólum sem hæstan dóm hlaut í vor. Hann er níu vetra gamall og ræktendur hans eru Axel Davíðsson og Bragi Sverrisson en eigandi er gæðingar ehf. Glampi hlaut 8,59 fyrir sköpulag, 8,72 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,68 það var Daníel Jónsson sem sýndi Glampa í Hafnarfirði dagana 7.-11.júní.

 

4 vetra hestar

Aðaleinkunn Nafn Uppruni í þgf.
8.36 Fróði Flugumýri
8.33 Tappi Höskuldsstöðum
8.33 Drangur Steinnesi
8.25 Glampi Skeiðháholti
8.23 Geisli Árbæ
8.23 Ómar Garðshorni á Þelamörk
8.12 Ljósvaki Steinnesi
8.12 Kvistur Kommu
8.09 Lótus Efsta-Seli
8.08 Vigur Kjóastöðum 3
8.08 Draupnir Holtsmúla 1
8.06 Abel Skáney
8.03 Funi Hjarðartúni
8.03 Hlekkur Austurási
7.99 Svalur Fellskoti
7.98 Liðsauki Áskoti
7.96 Geimfari Álfhólum
7.96 Hrynjandi Kviku
7.95 Efi Flekkudal
7.93 Fannar Flugumýri

 

5 vetra hestar

Aðaleinkunn Nafn Uppruni í þgf.
8.52 Magni Stuðlum
8.5 Töfri Þúfum
8.43 Sóli Þúfu í Landeyjum
8.38 Sólfaxi Herríðarhóli
8.37 Skyggnir Skipaskaga
8.35 Dagur Austurási
8.34 Gjafar Efri-Fitjum
8.34 Prins Hjarðartúni
8.34 Nemó Efra-Hvoli
8.33 Greifi Bræðraá
8.32 Goði Oddgeirshólum 4
8.29 Salómon Efra-Núpi
8.28 Eldur Kvíarhóli
8.28 Sindri Lækjamóti II
8.27 Eldur Laugarbökkum
8.22 Óríon Strandarhöfði
8.21 Logi Valstrýtu
8.2 Dagur Skeiðháholti
8.19 Framherji Skipaskaga
8.18 Stæll Skagaströnd

 

 

6 vetra hestar

Aðaleinkunn Nafn Uppruni í þgf.
8.68 Seðill Árbæ
8.57 Gandi Rauðalæk
8.55 Pensill Hvolsvelli
8.51 Hersir Húsavík
8.5 Hávaði Haukholtum
8.49 Atli Efri-Fitjum
8.47 Silfursteinn Horni I
8.44 Kunningi Hofi
8.44 Seiður Hólum
8.43 Ágústínus Jaðri
8.43 Blesi Heysholti
8.42 Kraftur Eystra-Fróðholti
8.39 Kolgrímur Breiðholti, Gbr.
8.39 Kunningi Hofi
8.37 Tjörvi Bæ 2
8.37 Hervar Innri-Skeljabrekku
8.36 Kraftur Eystra-Fróðholti
8.36 Hálfmáni Hafsteinsstöðum
8.34 Vigri
8.32 Dalur Meðalfelli

 

 7 vetra hestar og eldri

Aðaleinkunn Nafn Uppruni í þgf.
8.68 Glampi Kjarrhólum
8.55 Huginn Bergi
8.48 Kastor Garðshorni á Þelamörk
8.47 Nökkvi Hrísakoti
8.42 Rosi Berglandi I
8.4 Steinar Stíghúsi
8.39 Álmur Reykjavöllum
8.39 Djarfur Flatatungu
8.38 Glæsir Þorlákshöfn
8.35 Özur Ásmundarstöðum 3
8.33 Tangó Litla-Garði
8.32 Skugga-Sveinn Þjóðólfshaga 1
8.3 Kastor Garðshorni á Þelamörk
8.3 Heiður Eystra-Fróðholti
8.23 Tenór Litlu-Sandvík
8.22 Reyr Efri-Fitjum
8.13 Fjölnir Flugumýri II
8.08 Þróttur Þjóðólfshaga 1
8.07 Flygill Sólvangi
8.02 Haukur Fremstagili

 

Bottom of Form

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link