Þórarinn leiðir einstaklingskeppnina
Í gærkvöldi fór fram gæðingafimi KS-Deildarinnar.
Þetta er í annað skipti sem boðið er upp á þessa keppnisgrein í deildinni.
Það verður að segjast eins og er að áhugi virtist ekki vera mikill á greininni hjá áhorfendum sem voru fáir í gærkvöldi. Áhugi knapa virtist einnig mismikill.
Eins og á öðrum keppniskvöldum voru þarna stig í boði og þeir sem röðuðu sér í efstu sætin voru öll með vel útfærðar sýningar þar sem frábær reiðmennska og gæði hrossa fóru saman.
Þetta var mjög gott kvöld fyrir lið Draupnis/Þúfur þar sem Artemisia og Mette röðuðu sér í tvö efstu sætin og náðu þar með forystu í liðakeppni deildarinnar sem er orðin æsispennandi.
Mette saxaði einnig á forskot Þórarins í einstaklingkeppninni þar sem Bjarni og Gústaf fylgja fast á eftir.
Það er því ljóst að á lokakvöldi keppninnar sem fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld 6.apríl verður hart barist bæði í liða- og einstaklingkeppni deildarinnar.
Hérna má sjá stöðuna í deildinni fyrir lokakvöldið.
1.Þórarinn Eymundsson Hrímnir – 81
2.Mette Mannseth Draupnir/Þúfur – 77
3.Bjarni Jónasson Hofstorfan/66°norður – 61
4.Gústaf Ásgeir Hinriksson Hofstorfan/66°norður – 58,5
5.Ísólfur Líndal Íbess/Hleðsla – 55,5
6.Gísli Gíslason Draupnir/Þúfur – 48,5
7.Artemisia Bertus Draupnir/Þúfur – 48
8.Líney María Hjálmarsdóttir Hrímnir – 46
9.Flosi Ólafsson Mustad – 39,5
10.Fanney Dögg Indriðadóttir MountainHorse – 37,5
11.Hans Hilmarsson MountainHorse – 35
12.Helga Una Björnsdóttir Mustad – 35
13.Guðmundur Karl Tryggvason Lífland – 30
14.Hallfríður S. Óladóttir MountainHorse – 30
15.Elvar E. Einarsson Hofstorfan/66°norður – 27
16.Hlynur Guðmundsson Mustad – 26
17.Anna Kristín Friðriksdóttir Íbess/Hleðsla -24,5
18.Valdimar Bergastað Hrímnir -24
19.Þór Jónsteinsson – Lífland 23
20.Barbara Wenzl Draupnir/Þúfur – 22,5
21.Lilja Pálmadóttir Hofstorfan/66°norður – 20,5
22.Magnús B Magnússon Íbess/Hleðsla – 19,5
23.Jóhann B. Magnússon Íbess/Hleðsla – 15,5
24.Birna Tryggvadóttir Lífland – 15
25.Elvar Logi Friðriksson MountainHorse – 14,5
26.Sina Scholz Mustad – 14
27.Bjarney j Unnsteinsdóttir Mustad – 9,5
28.Agnar Þór Magnússon Lífland – 9
Liðakeppni
Draupnir/Þúfur – 196
Hrímnir – 186
Hofstorfan/66°norður – 167
MountainHorse – 117
Íbess-hleðsla – 115
Mustad – 89
Lífland – 77
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH