Glæsilegur Stóðhestadagur-
Fjölmargir hestamenn og áhugamenn um hrossarækt lögðu leið sína á Brávelli í sólkinsveðri dagsins til að berja augum glæsilega stóðhesta sem sýndir voru á Stóðhestadegi Eiðfaxa og hestamannafélagsins Sleipnis.
Sýndir voru bæði ungir og upprennandi kynbótahross, ódæmdir folar sem bundnar eru vonir við og aðrir sem hafa sannað kosti sína og stefnt er með í sýningar eða keppnir. Litu þar við í braut nokkrar af stórstjörnum meðal kynbótahrossa áhorfendum til mikillar gleði.
Eiðfaxi þakkar öllum fyrir komuna og sendir sérstakt þakklæti til allra knapa sem tóku þátt. Einnig þökkum við Sleipnismönnum fyrir afnot af frábærri aðstöðu félagsins að Brávöllum og starfsfólki sem lagði hönd á plóg í dag.
Ljóst er á áhorfendafjölda dagsins að stemning er fyrir sýningum sem þessu tagi og er það von okkar að geta gert Stóðhestadag Eiðfaxa að árvissum viðburði.
Áhorfendur voru ekki sviknir af fasi og fótaburði kostagæðinga eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH