Kappreiðaskeiði frestað til morguns
Konráð Valur og Sigursteinn ganga af velli eftir að tilkynnt var um frestun. Ljósmynd/Eiðfaxi
Keppni í 250 metra og 150 metra skeiði sem fara átti fram nú í kvöld hefur verið frestað til morguns. Ástæða þess ku vera bilun í tæknibúnaði en áætlað er að kappreiðarnar fari fram að lokinni gæðingafimi annað kvöld klukkan 20:30. Það verður því snemmbúinn kvöldvaka á morgun.
Dagskrá hér á Íslandsmóti er því lokið í dag en hún hefst í fyrramálið klukkan 09:00 á keppni í slaktaumatölti.
Föstudagur
09:00 Slaktaumatölt T2 (1-38)
12:30 Hádegishlé
13:30 Tölt T1 (1-30)
16:00 Kaffihlé
16:20 Tölt T1 (31-59)
18:30 Kvöldmatarhlé
19:30 Gæðingafimi
20:30 250m og 150m skeið, sprettir 3 og 4 – verðlaunaafhending
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH