„Ég tel að þessi grein sé kominn til að vera“
Keppni í gæðingafimi fór fram nú í kvöld á Íslandsmótinu á Hólum. Um sýningargrein var að ræða og því ekki krýndur Íslandsmeistari.
Mette Mannseth hlaut hæsta einkunn í gæðingafimi og er því sigurvegari hún var á Skálmöld frá Þúfum. Í öðru sæti varð Gísli Gíslason á Trymbli frá Stóra-Ási og í því þriðja Hanna Rún Ingibergsdóttir.
Eiðfaxi tók Mette tali og spurði út í gæðingafimi og ýmislegt fleira. Viðtalið má horfa á í spilaranum hér að ofan.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH